Vikan


Vikan - 24.12.1981, Qupperneq 31

Vikan - 24.12.1981, Qupperneq 31
Popp vegna þess að þeir kunni ekkert annað. Góðar viðtökur tónlistar þeirrra hafa gert þá undrandi. „Þarna vorum við, litlu krílin, mitt á meðal allra forhertu glæponanna á vinsældalistunum, Police, Barbra Streisand og Abba.” En þeir segjast svo sem gera sér grein fyrir að þeir verði að einhverju leyti að lúta lög- málum markaðarins og gera fleira en gott þykir en allt er það leið að ákveðnu marki. Þegar leiðin skyggir á markið er verr af stað farið en heima setið. Andy og Paul eru ekki menntaðir tón- listarmenn en vilja meina að þess vegna eigi þeir hægara með að bregða út af hefðunum og fitja upp á nýjungum. Tölvupoppið svonefnda er af mörgum álitið tónlist níunda áratugarins. O.M.D. sýnir og sannar að sú tónlist þarf ekki að vera köld og hryssingsleg. CHRISSIE og strákarnir ÍPRETENDERS Ein þeirra kvenna sem hvað hressilegast lætur til sín taka I rokkinu er söngkonan, gítarleikarinn og lagasmiðurinn Chrissie Hynde. Hún er fremst I flokki í The Pretenders en auk hennar skipa hljóm- sveitina þrír karlmenn: Pete Fardon bassaleikari, James Honeyman Scott gítarleikari og Martin ‘Chambers trommuleikari. Chrissie Hynde er 28 ára, fædd og uppalin í Ohio i Bandaríkjunum. Árið 1974 flutti hún til Englands og gerðist blaðamaður við tónlistarblaðið New Musical Express. Hún var þekkt fyrir miskunnarlausar yfirheyrslur yfir við- mælendum sínum þegar hún tók viðtöl. Kynni Chrissie af toppfígúrunum I bresku tónlistarlifi urðu til þess að hún ákvað að slást í hópinn. The Pretenders komu fyrst saman um mitt ár 1978 og hlaut hljómsveitin góðan meðbyr strax frá upphafi. Tvær litlar plötur sem hún lét frá sér fara féllu I góðan jarðveg. Hljómsveitin naut álits og var eftirsótt til að spila á klúbbum og á minni stöðum. Þótt undarlegt kunni að virðast óttuðust Chrissie og strákarnir velgengnina og áhrif hennar og var ekkert um að auglýsa sig. Tónlistarblöðin virtust hafa tekið við þau ástfóstri en þau höfnuðu þessari yfirmáta og að þeim fannst óþarfa athygli. Um jólaleytið 1979 kom út þriðja smáplatan, Brass in Pocket, og komst hún á efsta tind vinsældalistans i janúarbyrjun 1980. Um sama leyti var breiðskífan The Pretenders sett á markað og fór sömu leið upp á efstu brún. Ummælin um þá plötu voru mjög á einn veg: ein besta frumraun í manna minnum. Roger Daltrey söngvari The Who fullyrti að þarna væru á ferðinni bestu nýgræðingar sem hann hefði heyrt I síðan The Who voru sjálfir aðbyrja. The Pretenders njóta ekki síður mikils álits í Bandaríkjunum en Bretlandi, komust meðal annars á forsíður tíma- ritsins Rolling Stone sem í það minnsta einu sinni þótti mikill heiður. Velgengnin hefurekki stigið Chrissie til höfuðs. Allt glysið sem fylgir i kjölfar frægðarinnar er henni ekki að skapi. Velgengni er auðvitað ágæt og eykur sjálfstraustið en breytir ekki lífinu. Chrissie er ákveðin kona, jarðbundin ogblátt áfram. Hún hélt upp á fyrsta toppsætið á vin- sældalistanum með því að drekka sig fulla og fara síðan heim og skæla í koddann sinn — af gremju yfir öllum hræðilegu sögunum sem hún las og vissi að hún átti eftir að lesa um sjálfa sig í blöðum og tímaritum, bara af því nú var hún orðin fræg og þess vegna skemmti- legt umræðuefni. 1 haust kom út The Pretenders II. Flest lögin eru eftir Chrissie. Þrjú lög af plötunni hafa komið út á litlum plötum. Talk of the Town, Day After Day og I Go to Sleep, en það síðastnefnda er undurfallegt lag eftir Ray Davis úr Kinks. Hljómsveitin tók sér góðan tíma við gerð plötunnar og árangurinn skilar sér. Tónlistin er vandað rokk og textarnir fjalla um vandamál lifsins og ástarinnar eilifu út frá sjónarhóli nú- timakonunnar sem er hvort tveggja í senn þrúguð af gömlu gildismati og fegin nýfengnu frelsi. 52. tbl. Vikan 31
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.