Vikan - 24.12.1981, Qupperneq 51
Draumar
Barneignir
Kæri draumráöandV.
Ég ætla að biðja þig að ráða
fyrir mig tvo drauma. Sá fyrri
var þannig aö mér fannst ég
sjá lítinn eins árs strák í háu
grasi og hann var að koma
hlaupandi til min og kallaði
alltaf,. mamma, mamma! ” Þessi
litli strákur var með ofsalega
Ijóst hár, nœrri hvítt. Hann var
I fötum eins og Emil í Kattholti
klæddist alltaf. Og svo var
hann með derhúfu og I tré-
klossum. Hann var pínulítill I
grasinu. Það var mjög gott
veður. Á eftir litla stráknum
kom 5 ára gömul stelpa og
kallaði líka til mín „mamma,
mamma!” Ég tók litla strákinn
I Jángið og leiddi stelpuna. Þá
kom strákur sem við skulum
kalla X og þá ruku börnin til
stráksins sem kom labbandi á
rnóti okkur og börnin kölluðu
„pabbi, pabbi!" og hlupu i
fangið á stráknum. Við
gengum I þessu háa grasi, eöa
þetta var eiginlega hveitiakur,
held ég.
Draumur 2:
Ég var nýbúin að eignast lítinn
strák sem var með svart hár.
Hann var í bambuskörfu með
hvítu tjaldi með bleikum litlum
rósum i kring. Pabbi vildi
endilega passa barnið og rak
mig út í sjoppu til að kaupa
barnamjólk og mat. Ég fékk
ekki barnamat í pakka, bara
dós, og ég fékk ekki barna-
mjólkina. Pabba barnsins þekki
ég voðalega lítið (við skulum
kalla hann Y).
Um kvöldið þegar ég var búin
að svæfa barnið kom Y og
var ofsa „happý” að vera
búinn að eignast son. Ég leyfði
honum að sjá hann og þá
spurði Y hvort ég vildi giftast
sér og ég sagði já. Svo fluttum
við í nýja íbúð og vorum ofsa
hamingjusöm.
Nú vaknaði ég og pældi mikið
í þessum tveim draumum sem
ég vona að þú getir ráðið fyrir
mig. Hvað þýðir að dreyma
smábörn? Hvað þýðir fólk sem
er dáið og mann dreymir en
veit ekkerl hvaða fólk það er?
Jæja, bless, ogfyrirfram þökk
fyrir birtinguna,
Ein sem biður spennt eftir
svari.
í þessum draumum sér draum-
ráðandi mjög sterk áhrif frá
ýmsu því sem hendir þig í
daglega lífinu, sjónvarpi og
draumum og eflaust einhverjum
ástarsögum. En ráðningu skaltu
samt fá og hér er hún: Þessir
draumar eru báðir jákvæðir þótt
ekkert bendi til frekara
sambands þín og strákanna í
draumnum. Framtíðin virðist
brosa við þér og lítinn skugga
bera þar á.
Mjög er umdeilt hvort gott sé
að dreyma smábörn en þó er
venjarf að telja að fyrir góðu sé
að dreyma „sveinbarn er sjálfur
eigi” eins og það er stundum
Stelpur þykja ekki eins góðar í
draumum en draumráðanda
þykja smábörn yfirleitt vera
heldur góð draumatákn.
Framliðið fólk er mjög
algengt í draumum og fer mjög
eftir samhengi draumsins og
nöfnum fólksins hvort þeir
draumar eru jákvæðir eða
neikvæðir.
Draumar sem dáið fólk er í
eru þó að jafnaði frekar góðir
draumar nema draumanöfnin
séu sérlega slæm.
Sár á brjósti
Kœri draumráöandi.
Viltu gjöra svo vel og ráða
þennan draum.
Mér finnst ég vera að skoða á
mér brjóstið og sé pínulítið sár
á brjóstinu, eins og eftir grófa
nál. Ég tek plástur og set yjfir
sárið og klæði mig svo.
Þessa nótt dreymdi mig einnig
foreldra mína (sem báðir eru
dánir). Þau sátu þögul og þung-
búin bæði þétt saman og voru
uppábúin.
Með kærri kveðju og þökk.
Ein áhyggjufull.
Draumráðanda er nokkur vandi
á höndum með ráðningu þessa
draums. Draumatáknin eru ekki í
fullu samræmi hvert við annað
en samt er rétt að kljást við
þennan draum strax því ekki
dugar að þú hafir óþarfar
áhyggjur hans vegna. Draum-
ráðandi skilur vel að hann valdi
þér hugarangri.
Þessi draumur er vissulega
fyrir einhvers konar missi en
plásturinn og það að þú klæðir
þig í draumnum bendir til að
ekki sé um dauðsfall að ræða,
eins og annars hefði getað verið.
Sumir segja reyndar að plástur
sé fyrir veikindum á þeim stað
sem plásturinn er settur en það
virðist í ósamræmi við annað í
draumnum og er ólíklegra en
hitt að þú verðir fyrir einhvers
konar missi sem þú kemst þó vel
yfir. Heillatákn eru líka í þessum
draumatáknum eins og til að
segja að gæfan sé ekki langt
undan þegar erfiðleikar steðja
að.
Nærvera foreldra þinna er
einhvers konar aðvörun í
draumnum og er þér finnst á
einhvern hátt að þú getir sýnt
gætni og fyrirhyggju, sér-
staklega í sambandi við vanda-
samar ákvarðanir, þá eru þau
áreiðanlega að brýna fyrir þér
fyllstu gætni.
Þú ættir ekki að láta þennan
draum angra þig mjög, hann er
til leiðsagnar og segir þér annars
vegar að það er ýmislegt sem þú
getur gert, ef þú sérð fram á
vanda, og hins vegar að þú átt
gott framundan þó þú verðir
fyrir einhvers konar missi,
jafnvel að missir verði aðeins
tímabundinn.
Skop
5*. tbl. Vikan 51