Vikan - 29.09.1983, Síða 5
Það var ekkert Suðurlands-
veður i Kaupmannahöfn
þessa dagana og fólkið undi
sér vei léttklætt i bolum sem
vöktu verðskuldaða athygli.
Ljósm. Guðlaug Maria
Sigurðardóttir.
Mikið var tekið af
myndum í ferð-
inni. Hór hefur
einn þátttakand-
inn sett sig i við-
eigandi stellingar
til að ná virkilega
góðu portretti af
páfugli í Dýra-
garðinum.
Ljósm. Guðlaug
Maria Sigurðar-
dóttir.
Þetta var fríður hópur vaskra sveina og meyja
og bjargaði sór furðu vel sjálfur þegar það átti
við.
Ljósm. Guðlaug Maria Sigurðardóttir.
crp
- jL ræg er sagan af Steini Bolla-
syni sem nánast fyrir tilviljun
var allt í einu orðinn 100 barna
faðir. Eins og gefur að skilja gekk
á ýmsu fyrir honum að hafa ofan
af fyrir þessum börnum, hvar
fyrir hann fór út í heim og tókst
að glepja þar heldur einfaldan
risa og þegar hann kom með
hann heim í þjónustu sinni hljóp
allur barnaskarinn á móti þeim
og hrópaði: ,,Pabbi kemur með
kjöt — pabbi kemur með risa-
kjöt!”
Þar sem ég var einn af fylgdar-
mönnum Viku- og DV-barnanna
í ævintýraferðinni til Kaup-
mannahafnar dagana 13. —16.
ágúst síðastliðinn gat ég oft ekki
varist þeirri tilhugsun að ég væri
annar Steinn Bollason, þótt
börnin mín í þessari ferð væru
ekki nema fjórði partur af við-
komunni hjá Steini. Það verður
að segjast eins og er að þetta var
erfið ferð, ekki síst fyrir okkur
sem áttum að vera forsjá liðsins,
en um leið var hún þó býsna
skemmtileg. Og þegar hún er nú
giftusamlega afstaðin getum við
sagt eins og stendur í ljóðinu:
Allir komu þeir aftur og enginn
þeirra dó, af ánægju út að eyrum
hver einasta kerling hló.
Eins og flestir Vikulesendur
vita líklega nú orðið var þessi
ferð farin með vinningshafa úr
keppni sem efnt var til meðal
dreifingar- og sölubarna DV og
Vikunnar. Dregnir voru út
tuttugu og fímm vinningar og
verðlaunin voru ævintýraferð
með Flugleiðum til Kaupmanna-
hafnar. Við fórum út seint á
laugardegi, vorum í Kaup-
mannahöfn sunnudag og mánu-
dag og héldum heim um miðjan
dag á þriðjudegi.
Krakkarnir voru flestir á
aldrinum tíu til þrettán ára.
Aldursforseti var að sjálfsögðu
heiðurskempan hann Öli Þor-
valdsson, betur þekktur undir
nafninu Óli blaðasali, sem hefur
staðið í fremstu víglínu þjón-
ustu- og sölumanna Vísis og síðar
DV í hartnær hálfa öld. Eins og
gefur að skilja var hópnum mikið
nýnæmi í því að koma til útlanda
og spenningurinn eftir því. Það
39. tbl. Vikans