Vikan - 29.09.1983, Blaðsíða 22
UMSJÓN: ANNA
Skógarferð
Fyrir nokkrum árum var mjög í tísku að senda
vini og kunningja í svokallaða „skógarferð” til að
uppgötva innviði sálna þeirra. Ekki svo að skilja
að menn væm sendir í gamla kirkjugarðinn (sem
mun einna stærstur skóga á Reykjavíkursvæðinu)
til að athuga hvort menn fæm að reyta arfa, syngja
ástaróð eða hrekkja vegfarendur. Þessar skógar-
ferðir vom byggðar upp á þeim sam-íslenska
ferðamáta sem hentugastur er flestum:
að sitja kyrr á sama stað
en samt að vera að ferðast,
eins og þjóðskáldið sagði— og fór svo sjálft.
Nú þykir tímabært að rifja upp skógarferðir
sams konar og skyld fyrirbæri, því nýjar vinakyn-
slóðir em sjálfsagt ókannaðar enn. Gamla, góða
skógarferðin byggðist upp á ákveðnum
spurningum sem vísuðu veginn um ímyndaðan
skóg, og síðan reyndi á spyrjanda og skógarferða-
lang í því að túlka svörin.
Til er önnur útgáfa þessa leiks, nokkuð keimlík,
en þeim leik fylgir mjög nákvæm túlkun á svör-
unum og sjálfsagt er að birta báðar útgáfurnar,
skógarferðina og garðferðina, og síðan geta menn
gert upp við sig hvort þeim þykir meira varið í.
SKÓGA RFERÐIN
1. Sestu andspænis væntanlegum
feröalang og segöu viö hann
eitthvað á þessa leiö: „Þú ert
kominn inn í skóg. Hvernig er
skógurinn? Líttu í kringum
þig, niður á jöröina og upp
fyrir þig og segðu mér hvaö þú
sérð.” Gættu þess vel aö ferða-
langurinn segi allt sem honum
liggur á hjarta og spyröu hann
síðan hvort hann sé á stíg,
hvernig stígurinn sé og biddu
hann síðan aö halda áfram,
eftir stígnum eða utan hans ef
stígurinn er þá inni í myndinni.
2. Næsta vísbending frá þér er á
þessa leiö: „Nú séröu lykil á
jörðinni. Hvernig er þessi lykill
og hvaö gerirðu við hann?
Hvernig finnst þér hann?”
Þetta er yfirleitt einfalt en þaö
skiptir máli hvort lykillinn er
tekinn meö eöa ekki og allir
útúrdúrar eru prýðilegir. Þá er
bara aö halda áfram.
3. „Næstkemur þúaövatnsfalli,”
segir þú. „Hvernig er það?”
Hérna skiptir ýmislegt máli. Er
vatnsfallið stórt eða lítiö,
straumhart eða lygnt, tært eöa
gruggugt, er brú yfir það, stikl-
ur eöa er það ófært (hægt að
vaöa eöa ekki)? Leyfðu ferða-
langnum aö tjá sig um vatns-
fallið áður en þú ferð að fiska
eftir frekari skýringum. Ekki
spyrja leiöandi spurninga.
Fáðu á hreint hvort viðmælandi
þinn fer yfir eða ekki.
4. Þú lætur ferðalanginn halda
áfram um skóginn: „Næst
kemurðu að vegg. Hvernig
veggur er þetta?” Hér skaltu
leita eftir eins góðri lýsingu og
þú getur, sem endranær, og
reyndu síöan að finna út hvort
veggurinn er ókleifur og hvort
ferðalangurinn fer upp á hann,
yfir eða framhjá.