Vikan


Vikan - 29.09.1983, Blaðsíða 16

Vikan - 29.09.1983, Blaðsíða 16
LAXNESS í RUSLAFÖTUNNI FYRSTA SPORIÐ í ÁTT TIL / gamla skatthol- 'mu til vmstri á myndmni fann LaDonna Þórdís Breiöfjarð gamah bréf með undir- skrift og var það fyrsti haldbœri tengHiður hennar við ættmgjana á ís- landi. Ættfræði er án efa eitt vinsælasta áhugamál íslendinga. Sjaldan hittast tveir íslendingar svo þeir reyni ekki að rekja ættir sínar saman. Þessi áhugi er ekki síðri hjá þeim íslendingum sem flytjast af landi brott. En nú er það oft svo að tengslin við ættlandið gamla rofna að miklu eða öllu leyti þegar heilu fjölskyldurnar flytjast til annarra landa og festa þar rætur. Hvernig fara menn þá að þegar komið er fram í þriðja eða fjórða ættlið og bókstaflega ekkert er til að styðjast við? — Það er saga að segja frá því, eins og sannaðist þegar LADONNA ÞÖRDÍS BREIÐFJÖRÐ hóf að grúska í þeim málum. Hún kom til íslands nú í sumar og hafði þá eftir ýmsum krókaleiðum komist að því hvert skyldfólk hennar var. Við báðum hana að segja okkur af hverju hún hefði lagt svo mikið á sig við þessa leit. Ef til vill kannast einhverjir ættfræðiáhugamenn á meðal lesenda við þau nöfn sem hér koma fram og geta þá bætt við einu nafni á ættartré sitt, nafni LaDonnu Þórdísar Breiðfjörð: Ég er að vinna að sögulegri skáldsögu um frum- byggjana í Norður-Dakota. „Ástæðan fyrir því að ég ákvað að heimsækja Island er samofin því að ég vinn nú að sögulegri skáldsögu um íslensku frumbyggjana sem settust að við Mouse River í Norður-Dakota í Kanada. Ég vildi byggja söguna á reynslu afa míns, Einars Björg- vins Breiðfjörð frá Sælingdals- laug í Dalasýslu, og ömmu, Guð- rúnar Jónasdóttur frá Borgum á Skógarströnd. Þau dóu þegar ég var lítil og af ýmsum ástæðum höfðu tengslin við Island rofnað þegar þau féllu frá. Faðir minn hafði því ekkert í höndunum sem gat hjálpað mér þegar ég byrjaði að grafast fyrir um bakgrunn þeirra á Islandi. Það sem ýtti undir þennan áhuga minn var einnig að afi minn og amma höfðu flust frá Norður-Dakota og búið hjá for- eldrum mínum í Minnesota þegar ég var aðeins bam. Það var alltaf einhver töfraljómi yfir þeim í mínum augum. Þau voru svo kurteis og hógvær og með af- brigðum gestrisin. Mér fannst íslenskan þeirra hljóma eins og töfrahljómar og þegar afi las upp úr Islendingasögunum eða biblí- unni þá sat ég og mændi dolf allin á hann. Upp frá þessu var Island draumalandið mitt. ( skattholinu fann ég fyrstu vís- bendinguna. Ég spurðist aldrei fyrir um bak- grunn þeirra og vissi ekki mikiö um Island fyrr en ég fluttist til Kalifomíu, 17 ára gömul. Þá gerðist sá atburður sem varð þess valdandi að ég fór að hugsa um það að ráði að grennslast fyrir um skyldfólk mitt. Ég var aö ganga fram hjá húsi nágranna minna og sá hvar frúin var að henda bókum í ruslatunnuna. Mér fannst þetta alveg ófyrirgefanlegt og færði mig nær. Þá sá ég að ein þeirra var Independent people eftir ís- lenskan höfund, HaUdór Kiljan Laxness. Ég spurði hvort ég mætti eiga bókina og það var ekki nema sjálfsagt. Ég fór með hana heim og las hana og las hana aftur og aftur, ég veit ekki hvað mörgum sinnum! Ég var alveg heilluð af því sem þar var lýst. Eftir þetta fór ég að leita að fleiri bókum sem þýddar höfðu verið eftir íslenska höfunda. Þá var það eitt sinn, fyrir ein jólin, að faðir minn hringdi í mig og spurði 16 Vikan 39.tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.