Vikan - 29.09.1983, Blaðsíða 7
Ljósm. IManna Buchert.
Hópurinn var talinn jafnt og þétt til
afl ganga úr skugga um að enginn
hefði orðið viðskila. Það er Þor-
björn Gíslason, dreifingarstjóri Vik-
unnar og DV, sem kastar tölu á lifl-
ifl.
Ljósm. Sigurður Valgeirsson.
Leiflsögumaður okkar í skoflunar-
ferflum og hjálparhella almennt var
Inga Birna Jónsdóttir sem búsett er
í Kaupmannahöfn. Hún var vakin
og sofin i að hjálpa okkur og segja
frá því markverða sem fyrir augu
bar.
Ljósm. Sigurfiur Valgeirsson.
hjálparanda sem reyndi eftir
bestu getu að raða mununum
jafnóðum upp í hillu án þess að
mikið bæri á og stýra kaupunum
í sem æskilegastan farveg. Engu
að síður kom piltur út með
myndarlegan vaðsekk fullan með
varningi og hefur eflaust gert
góð kaup.
Síðar þennan dag stóð til að
fara á strönd, en þar sem sólin
var að mestu bak við ský aldrei
þessu vant var brugðið á það ráð
að framlengja heldur dvölina á
Strikinu og taka síðan hvíldar-
tíma heima á farfuglaheimilinu,
sem var gististaður okkar, áður
en haldið var á síðasta staðinn á
áætluninni, Dyrehavsbakken.
Að sumu leyti varð heimsóknin
þangað hápunktur ferðarinnar.
Þetta var mánudagskvöld, sem
þar að auki bar upp á afmælisdag
Bak vifl farfuglahaimilið voru
nokkrar hænur i girðingu og ofboð-
litill smáhestur. Enda má segja að
það sé úti i sveit þar sem það stend-
ur á auðu svæði á Amager.
Ljósm. Sigurður Hreiðar.
Þórður Orri Pétursson, 11 ára,
Reykjavík:
Ég hef komið þrisvar sinnum áður til útlanda að heimsækja
ættingja og vini en mér fannst þessi ferð mjög skemmtileg, það
heppnaðist allt svo vel. Skemmtilegast fannst mér í Tívolí og í
skoðunarferðunum sem við fórum í.
Ég keypti dálítið handa fjölskyldunni heima og ég vildi
gjarnan fara aftur í svona ferð.
Víðir Kristjánsson, 11 ára, Dalvík:
Mér fannst mjög gaman í þessari ferð. Þetta er í fyrsta skipti
sem ég fer til útlanda. Tívolíferðin var ofsa skemmtileg, ég
held ég hafí farið 5 ferðir í rússibananum.
Ég verslaði dálítið, keypti mér útvarp sem kostaði held ég
eitthvað um 180 danskar, svo keypti égmér sælgæti.Það var
mjög gaman að kynnast öllum hinum, sem vom með í ferð-
inni, og ég tók fullt af myndum en týndi svo filmunni en það
gerir kannski ekki svo mikið til. Ég get fengið lánaða filmu hjá
Berki hér á Dalvík, hann fór líka í þessa ferð.
39. tbl. Víkan 7