Vikan - 29.09.1983, Page 12
' J3 Jrj? , K ^
uan Carlos Melgar Rada heitir
bólivískur skiptinemi sem kom hing-
að til íslands til ársdvalar í lok júlí.
Hann er tvítugur að aldri og kemur
frá stærstu borg Bólivíu, La Paz, þar
sem öll stjórnsýsla hefur aðsetur.
Ferðinni er heitið til Egilsstaða og
sá áfangastaður er allólíkur því sem
fyrirsjáanlegt var hjá Juan Carlos
áður en hann ákvað að sækja um sem
skiptinemi þjóðkirkjunnar. Hann
hefur lokið menntaskólanámi í
heimalandi sínu, en pólitískt ástand
í landinu breytti fyrirætlunum hans
um að fara í búfræðinám og því er
hann hingað kominn.
,,Það hefur verið órólegt í
kringum háskólann í La Paz á und-
anförnum árum eins og reyndar í
landinu öllu. Stjórnir hafa komið og
farið, allt upp í fjórar á ári, og oft á
tíðum hefur alls ekki verið á hreinu
hvaða fög eru leyfð í skólanum og
hvaða fög bönnuð. Stjórnirnar hafa
haft allan hátt á því.
í nóvember síðastliðnum fengum
við stjórn sem kjörin var samkvæmt
Afrnæli aflýst vegna bylt
h
12 Vikan 39* tbl.