Vikan


Vikan - 29.09.1983, Page 18

Vikan - 29.09.1983, Page 18
KEVIN DRISCOLL lét grannan, 190 sentímetra langan líkamann síga niöur í gluggasætið í auöum klefanum um leið og miömorgun- lestin rann út af Sirencest Junction, áttatíu mílur sunnan við New York. Hitinn var þegar farinn aö hækka. Kevin losaði um bindið og lét þunnan jakkann falla í sætið. Yfirleitt þegar hann var á leið til New York leyfði hann huganum að taka á flug. Venjulega sá hann fyrir hugskotssjónum sínum hnit- andi mávana í heimabæ sínum á strönd Englands. En þennan morgun voru hugsanir hans undir skýi af dimmum kvíða. Hann hafði eytt heitri, svefnlausri nótt í áhyggjur af dóttur sinni. Laurel hafði hringt í hann kvöldið áður. Hún hafði virst í óvenju miklu uppnámi, rödd hennar hvell þegar hún sagöi hon- um að hún væri á leið heim um helgina. Það var nokkuð sem hún varð aö ræöa við hann — nokkuö sem hún réð ekki við ein. Hún hafði ekki tíma til mála- lenginga. Hún átti ekki meiri mynt og sambandið slitnaði, for- vitni Kevins til angurs. Hann haföi ekki séð Laurel í nærri því tvo mánuöi. Hún hafði verið svo upptekin af háskólalífinu að hún hafði ekki komið heim í litla húsið í Sirencest-þorpi frá því aö sumarönnin hófst. Kevin virtist þaö eðlilegt. Hann var sjálfur að vinna að tveggja ára skipti-rannsóknaverk- efni og gerði sér grein fyrir því hve önnum kafnir námsmenn voru, mundi eftir háskóladögum sjálfs sín. Laurel var að læra umhverfis- fræöi í háskóla í New York, var að nálgast átjánda afmælisdaginn — og fullorðinsár. Kevin fannst til- hugsunin grafalvarleg. Þegar Marta fórst hafði hann staðið eftir með tólf ára gamalt barn sem hann þurfti að ala upp. Renglulegt, klunnalegt barnið var nú orðið löguleg, sjálfsörugg ung kona, sem var gædd fegurö móður sinnar heitinnar, litarafti hennar og hörundi. Kevin fann fyrir gömlum þunglyndissting. Laurel var orðin næstum því eftir- mynd Mörtu, há, spengileg, með silfurljóst hár, blá augu sem af- vopnuðu, spékoppa sem birtust og hurfu svo jafnfljótt og skapbrigði hennar. Hún var, eins og fólk sagöi honum oft, honum til sóma. Vissulega var hann stoltur af henni. Og eftir að þau komu til Bandaríkjanna voru þau sam- rýndari, öruggari. Það var best að gleyma þessum fyrstu erfiðleikaárum ekkilsins. Hann hafði barist við Laurel, en sökkt sér dýpra í starf sitt við rannsóknarstöð skógræktarinnar. Hann haföi verið feginn þegar Laurel haföi erft ást hans á um- hverfi og umhverfisvernd og valið aö nema umhverfisfræöi. Engu að síður velti hann því fyrir sér núna, þegar hann dró bréfið upp úr skyrtuvasa sínum, hvort hann hefði staðið sig vel viö uppeldi dóttur sinnar. Ef til vill var hún líka farin að líkjast móöur sinni á öðrum sviöum. Kvíöinn og meö illar grun- semdir endurlas hann bréfið, sem hafði komiö með póstinum snemma um morguninn. Eftir dularfullt símtal við Laurel hafði bréfiö þegar þar á eftir komið honum í uppnám. Pabbi! Fyrirgefðu krotiö, en ég kem heim um helgina. Það hefur nokkuð komið upp á. Ég þarf að ræöa þaö við þig. Ég skal segja þér allt um það þegar ég kem heim. Ég get ekki ráðiö við þetta. Hafðu samt ekki áhygjur. Ég á ekki í neinum alvarlegum vandræðum eða neitt. Þetta er í sambandi við aðra. Kannski bregst ég of harkalega við. Kannski hef ég bara fariö í baklás yfir þessu. Ég vona þaö. En ef þetta er alt satt er málið skelfilegt. Hvað sem því líður hitti ég þig á 18 Vikan 39. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.