Vikan - 29.09.1983, Síða 30
Það eru fleiri
BURTON en
Richard BURTON
t! t'
Hann hefur þótt breskari en
nokkuð breskt, bún er eins
amerísk og frekast er mögulegt.
Hann er frægur, hún er óþekkt.
Hann heitir Richard Burton, hún
hcitir Kate. Hann er faðir hennar.
Þegar Richard Burton og
fyrsta eiginkona hans, Sibyl,
skildu, eftir 12 ára hjónaband, var
Kate aðeins fjögurra ára gömul.
Sibyl flutti til New York með dótt-
ur sína og þar ólst Kate upp við ást
og umhyggju móður sinnar og
stjúpföður, leikarans Jordan
Christopher. Á uppvaxtarárunum
var hún ákveðin í að verða allt
annað en leikari. Hún stundaði
nám í United Nations Internation-
al School og í Brown University í
New York og hugðist stefna á al-
þjóðlegt laganám. En innst inni
blundaði alltaf þráin eftir leikhús-
inu. „Ég sagði alltaf við sjálfa
mig,” segir Kate, „nei, nei, ég
held bara að mig langi til að leika
af því að ég er alin upp í leiklistar-
bransanum. En síðan gerði ég
mér grein fyrir því að éf ég gæfi
leiklistinni ekki möguleika sæi ég
eftirþvíalla ævi!”
Nú er Kate 25 ára og búin að
ljúka nánji við Yale í leiklist.
Fyrsta leikritið sem hún lék í á
Broadway var Present Laughter
þar sem hún lék á móti George C.
Scott, það næsta var aðalhlutverk-
30 Vikan 39- tbl.
ið í Lísu í Undralandi. HÚn lék eitt
sumar í vinsælu sumarleikhúsi í
Englandi og einn samstarfs-
manna hennar var Christopher
Reeve, betur þekktur undir nafn-
inu Superman. í þessu leikhúsi
hafa ekki ómerkari leikkonur en
Meryl Streep leikið en hún er ein-
mitt uppáhaldsleikkona Kate.
Þegar Kate var spurð að því
hvort eftimafn hennar hefði hjálp-
að henni á framabrautinni sagði
hún að það hefði valdið henni
miklum heilabrotum hvort hún
ætti að breyta nafni sínu.
„Sonur Martin Sheen breytti
nafni sínu í Emilio Estevez og all-
ir vita hver pabbi hans er. Allir
vita að Shirley Maclaine og
Warren Beatty era systkini. Ég
fann það út að þetta var bara
spurning um HVENÆR fólk kæm-
ist að því hver faðir minn er.”
Nú nýverið léku þau feðgin
saman er Lísa í Undralandi var
tekin upp á vídeó. Þar lék Kate
aðalhlutverkið og Richard Burton
lék hvíta riddarann. „Það væri
mjög gaman að fá að leika aftur á
móti pabba. En það verður að ger-
ast þegar við erum bæði tilbúin.
Pabbi er mjög taugaóstyrkur og
ekki batnar það við það að leika á
móti mér. En þetta var frábær
lífsreynsla og ég vona að hún eigi
eftir að endurtaka sig.”
Kate er dóttir Richard Burton og
fyrstu konu hans, Sibyl.
Kate þykir amerískari en nokkuð ameriskt.
Kate og Richard Burton í hlutverk
um sínum i Lísu í Undralandi.