Vikan - 29.09.1983, Síða 35
Hamingjan
skjótan enc
Ursula vildi
w
RS
w
ESS
Þegar Ursula Andress hóf sambúð með Harry
Hamlin, amerískum leikara sem var 15 árum
yngri en hún sjálf, vakti það töluverða athygli.
Meiri athygli vakti það er hún varð ófrísk, 44 ára
gömul, og það í fyrsta skipti!
Þau hjónakornin settust að á Ítaliu og það fór
mjög fyrir brjóstið á þarlendum yfirvöldum að
þau skyldu þrjóskast við að láta pússa sig
saman fyrir framan guð og menn. Þau lýstu því
margoft yfir í blöðum að hamingjan væri ekki
komin undir skriflegu samþykki ítalskra kirkju-
yfirvalda og að þau væru fyllilega sátt við
ástandið eins og það væri.
Nú hefur þetta hamingjusama fjölskyldulif
fengið skjótan endi því Ursula setti það skil-
yrði fyrir áframhaldandi sambúð að þau giftu
sig. ,,Mig hefur alltaf langað til að gifta mig i
litilli kapellu á Ítaliu," segir hún, ,,en það er
ekki ástæðan fyrir skilnaðinum. Harry vill ekki
taka á sig þá ábyrgð sem fylgir því að eiga barn.
Hann er ungur og hefur ekki séð heiminn eins
og ég en mér fannst, sonar okkar vegna, að við
ættum að gifta okkur. En Harry vill ekki binda
sig, eins og hann kallar það. Ég vildi rólegt
heimilislíf á kvöldin, en hann vildi sífellt vera á
ferðinni, i næturklúbbum og partium. Hann
vildi búa í Hollywood, ég á Ítalíu! Ég elska hann
jafnmikið og ég gerði fyrir þremur árum en nú
verð ég að láta mér nægja son minn!"
Hamingjusöm fjölskylda, Ursula Andress 47
ára, Harry Hamiin 34 ára og litli Dimitri 3 ára.
orðín eíns
39- tbl. ViKan 35