Vikan - 29.09.1983, Blaðsíða 51
Barní
bifreið í vatni
Kæri draumráðandi.
Fyrir nokkru dreymdi
mig draum þann sem hér
fer á eftir. Eg vona að þú
getir hjálpað mér að ráða
hann því hann er búinn að
valda mér miklum heila-
brotum og áhyggjum.
Mig dreymdi að ég væn
að leggja af stað í bílferð.
En ég var að koma einhvers
staðar frá, ásamt fíeira fðlki
sem ég greindi ekki. Allir
fóru í sína eigin bíla. Uti
var niðamyrkur svo að ég sá
næstum þvt ekki neitt.
Tveir fólksbtlar fóru á
undan mér og hugðist ég
elta þá því ég var algjör-
lega ókunnug á þessum
slóðum. En því miður fjar-
lægðust bílarnir tveir mig
óðum og rauðu Ijóstýrurnar
á bílunum hurfu. Eg sá
næstum ekkert svo að ég
ákvað að stöðva bílinn til
að sjá hvert vegwrinn lægi.
En allt í einu var farið að
birta af degi. Eg stóð á
malarvegi en fyrir neðan
hann var sjór eða vatn en
vegurinn lá upp að fjalls-
rótum. Verður mér litið
niður í vatnið sem var alveg
tært og sé að á botninum er
rauði bíllinn minn. Barnið
mitt var inni í bílnum og
grét sárt. Mér leið mjög illa
að hlusta á barnið mitt og
vita hvernig færi fyrir því
þarna niðri í vatninu, inni-
lokuðu í bílnum. Eg var
hjálparlaus og leið hrylli-
lega. Systir mín stóð hjá
mér á bakkanum, en hún
gat auðvitað ekkert gert
heldur. En við fjallsræturn-
ar voru líka nokkrir rauðir
bílar, en þeir gátu því
miður ekki hafa verið
mínir, því þeir voru ekki
sömu tegundar. Eg vaknaði
upp af draumnum við það
að ég fól andlitið í höndun-
um og sagðist ekki þola
þetta ástand lengur.
Draumurinn var mjög skýr
og greinilegur og mér leið
illa í marga daga á eftir.
Kæri draumráðandi, ég
vona að þú sjáir þér fært að
ráða drauminn. Svo þakka
ég lærdómsnkan þátt og
um leið fyrir birtinguna.
Mínar bestu kveðjur.
Ein berdreymin.
Þessi draumur bendir til
þess að þú munir fljótlega,
eða hafir þá þegar að baki,
erfiðleikatímabil (myrkrið)
þar sem einhverjar vonir
hafa brugðist og þú tapað
af þeirri glætu sem þú tald-
ir þig hafa. En upp úr því
birtir heldur betur til og þó
undarlegt megi virðast eru
tvö erfiðustu atriðin í
draumnum jafnframt bestu
draumatáknin. Yfirvofandi
drukknun barnsins og
grátur þess eru sem sé
heillatákn ykkur báðum til
handa svo ekki verður um
villst. Það sem hefur verið
erfitt mun snúast upp í
mjög gott og það sem þú
hefur talið erfitt reynist þér
mun auðveldara en þú
hafðir ætlað. Svo virðist
sem úr einhverri flækju
muni greiðast og það valdi
þér létti og mikilli gleði.
Það staðfestir enn þessa
ráðningu að vatnið er tært
og þessi draumur er
dæmigerður fyrir óþægi-
lega drauma sem vita á gott
eitt.
í svört jakkaföt og hvíta
skyrtu og var svolítið stífur í
fasi eins og hann væri
eitthvað ekki alveg
ánægður með mig en ég var
hins vegar ægilega lukku-
leg með rós í hárinu og
klædd Ijósn mussu og Ijós-
um buxum.
Ein forvitin.
Með rós í hári
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að biðja
þig um að ráða fyrir mig
draum sem frænda minn
dreymdi fyrir um það bil
tveimur mánuðum.
Hann kom heim til sín
og þar var verið að halda
heilmikla veislu. Hann
kippti sér nú ekki mikið
upp við það en gekk að
kaffivélinni og fékk sér
kaffi. I því vtkur sér að
honum strákur og segir
honum að hér sé verið að
halda upp á trúlofun hans
og mína. Erændi minn
óskar honum til hamingju
og spyr hann að nafni.
Strákunnn segir honum
það en frændi heyrir ekki
hvað hann segir. Eitthvað
tala þeir meira saman og
frændi minn tekur eftir því
að allir í veislunni eru fullir
nema við tvö sem vorum að
trúlofast. Síðan spyr hann
strákinn aftur að nafni en
heyrir ekki enn hvað hann
segist heita. Frændi minn
fer þá inn að hvíla sig og
þegar veislan er um garð
gengin komum við inn til
hans að kveðja. Þá spyr
frændi strákinn aftur að
nafni og hann segir það en
hann heyrir ekki hvað hann
segir og með það förum
við.
Strákurinn var klæddur
Helst lítur út fyrir að
þarna sé um berdreymi
frænda þíns að ræða miðað
við þær upplýsingar sem þú
lætur fylgja draumnum. En
til að komast að því er ekki
um annað að ræða en koma
því svo fyrir að frændinn
hitti strákinn og staðfesti
hvort um sama mann sé að
ræða.
Táknin í draumnum eru
fá og flest jákvæð og þá sér-
staklega fyrir þá sem eru í
rómantískum hugleiðing-
um. Trúlofunin merkir
bókstaflega að þú munir
eignast þann sem þú vilt
fyrir mann. Rósin þykir líka
gæfumerki í ástum. Það
gæti dregið til einhverra
tíðinda í ástarmálum hjá
þér á næstunni og það eina
(og það verkar ekki mjög
sterkt) sem skyggir á er að
einhver misskilningur og ef
til vill ranglátir dómar
varpa einhverjum skugga á
þetta alit um stundarsakir,
en úr því ætti nú að
greiðast með tíð og tíma.
Þetta mun að líkindum
angra vin þinn meira en
þig sjálfa.
Ekki er hægt að fullyrða
hvort strákurinn sem þú
telur drauminn eiga við sé
sá sami og þú munt bindast
en það getur allt eins verið.
39. tbl. Víkan 51