Vikan - 03.05.1984, Blaðsíða 33
Höfundur þessarar myndar er Hrafn Snorrason frá ísafirði. Hann er að læra Ijósmyndun þar, búinn með
tvö ár, en hefur að baki nám við vélskóla og hefur starfað sem offsetljósmyndari á ísaflrði. Hrafn kvaðst
vinna myndir sínar að öllu leyti sjálfur, bæði framköllun á litfilmu og litstækkanir. Hann gefur eftirfarandi
tæknilegar upplýsingar um myndina: Fiima Vericolor II5025, Nikon F3,36 mm - 72 mm, f. 11 og tími 40-
60 sek.
Eins og við sjáum er handbragðið við þessa mynd afar vandað. Hrafn kvaðst ekki hafa tekið myndina
sérstaklega fyrir þessa samkeppni heldur hefði hann gaman af að le'rta að fyrirmyndum og tæki síðan
myndirnar við rétt skilyrði. Myndina tók hann í janúar síðastliðnum.
Höfundur þessarar ágætu vetrarmyndar er
Marteinn Ringmar en hann er kennari við Skálholts-
skóla. Við fengum margar góðar myndir frá Marteini
sem sýndu fólk að berjast í vetrarhörkum, en þessi
fannst okkur best.
Höfundur þessarar fallegu stemmningarmyndar er Hildur Halldórsdóttir, að hiti væri í vatninu og því gæti verið afar fallegt á þessum stað þegar frost
Álftamýri 38 Reykjavík. Myndin er tekin í Mývatnssveit í fyrravetur um jóla- er og hitaslæða stígur upp úr vatninu. Hildur, sem er í menntaskóla, kvaðst
leytið. Staðurinn heitir Vogur og stendur á Húsnestá við Mývatn. Hildur sagði hafa gaman af að taka myndir - í þetta sinn notaði hún Kodak filmu.
Emilía Baldursdóttir, Syðra-Hóli í Kaupangssveh, tók þessa mynd af
lítilli stúlku sem heitir Auðrún og á heima á Akureyri. Þegar við
spurðum Emilíu út í myndina sagðist hún taka lítið af myndum nú orðið
en hefði tekið mikið af myndum áður fyrr. „Þetta er tekið á bjálfavél,"
sagði Emilía hlæjandi, „og ég hef ósköp litið vh á þessu. Þó var ég
svolítið montin af þessari mynd."
Við þetta má bæta að við fengum sendar margar myndir í svipuðum
dúr en það er samspilið milli barns og hunds í þessari mynd sem lyftir
henni upp þegar myndirnar eru bornar saman.
Clive Halliwell heitir sá sem tók þessa skemmtilegu mynd. Clive, sem er Englend-
ingur, býr á Akranesi og er hjúkrunardeildarstjóri við sjúkrahúsið þar. Við spurðum
hann hvort hann hefði tekið myndina til að senda ættingjum sínum erlendis.
„Eiginlega ekki, þetta var svona skyndihugmynd vegna þess að okkur vantar eigið
húsnæði, svo ég bjó til þetta snjóhús heldur en ekkert. Ég sendi síðan bróður mínum
eina mynd til að sýna hvernig ég byggi."
Clive hefur verið hér á landi síðan 1975, talar ágæta íslensku og er kvæntur
íslenskri konu. Hann er fæddur í Manchester en alinn upp í Ipswich. Þegar við
spurðum hvernig stóð á því að hann kom til íslands svaraði hann: „Það var stelpa
sem plataði mig hingað og hún er í dag konan mín."
32 Vikan 18. tbl.