Vikan - 03.05.1984, Blaðsíða 23
Umferðin
— fyrsta umferð
Eg var á ferö í þeirri
alsvæsnustu þoku sem ég man
eftir. Sem betur fer var stór fólks-
bíll á undan mér svo ég hugsaði
með mér að á meðan ég sæi aftur-
ljósin á honum ætti mér að vera
sæmilega óhætt. Allt gekk þetta
vel þangað til allt í einu að
skrambans bíllinn snarhemlaði.
Eg var næstum lentur á honum,
þaut út úr bílnum og að ökumanni
fólksbílsins, sem var rétt fyrir
framan mig. — Hvers vegna snar-
stopparðu svona, maður? hrópaði
ég-
— Nú, ég varð nú eiginlega að
gera það, sagði hann, bílskúrinn
minn er bara ekki lengri!
Umferðin
— önnur umferð
Vagnstjórinn— Ég hef nú verið
á þessari leið í átta ár svo ég veit
vel um hvað ég er að tala.
Farþeginn: Á hvaða stöð beiðstu.
Lestarstjórinn fann mann
liggjandi á brautarteinunum.
— Hvað ertu að gera hér?
— Ég er orðinn þreyttur á lifinu og
ætla að láta lestina Kaupmanna-
höfn — París aka yfir mig.
— Ja, þá er ég hræddur um að þú
verðir að færa þig um spor, væni.
Þetta er lestin Kaupmannahöfn —
Gladsaxe.
— Þetta var skelfilega lífsreynsla!
Þarna var ég að ganga eftir gang-
stéttinni og uppgötvaði skyndi-
lega að ég var með annan fótinn i
gröfinni og hinn á bananahýði.
— Afsakaðu, vinur. Ef ég fer yfir
þetta tún hérna, heldurðu að ég
nái þá hálffjögurvagninum?
— Já, já, og ef nautið kemur auga
á þig ættirðu að ná hálfþrjúvagn-
inum!
Maður á stórum dreka með
amerísku númeri var að keyra
eftir götum Akureyrar. — Hæ!
kallaði ökumaðurinn. — Hvar er
Nonnahúsið?
— Það er nú í þessa átt, svaraði
vegfarandi en þú þarft ekkert að
flýta þér svona, hann er dáinn!
— Liggur nýi bíllinn vel i
beygjunum?
— Já-há! Svo vel að Vökubilarnir
hafa þrisvar þurft að koma til að
ná honum upp!
Margreynd flugfreyja var að gefa
nýliðanum hollráð:
— Mundu bara að þegar við erum
i loftinu þá er það: Já, flugstjóri,
og þegar við erum áJörðinni þá er
það: Nei, flugstjóri!
— Heyrðu, ég finn ekki bíl-
lyklana, veistu nokkuð um dósa-
hnífinn?
— Afsakið flugfreyja, ég ætla
ekkert að vera að nöldra, en getur
verið að þetta hafi verið flugstjór-
inn og aðstoðarflugstjórinn sem
ég sá fara niður úr flugstjórnar-
klefanum í fallhlif?
Gott gott er gott!
FINNICE súkkulaðikex
er gott gott.
Fáið ykkur FINNICE.
Fráááábært!
^kantoÍarT^
FINNSKT GÆÐAKEX
18. tbl. Vifcan 23