Vikan - 03.05.1984, Blaðsíða 22
Slúður
Litlir prinsar leika sér
Katie Rabett átti að vera stóra ástin, en
endalokin uröu önnur.
Andrew prins í Englandi, sem
nú er oröinn 24 ára, þykir ákaf-
lega gaman aö vera meö fallegu
kvenfólki. En þegar hann fór aö
sjást oftar en góöu hófi gegndi
meö klámleikkonunni Koo Stark
var hinni siðprúöu móöur hans,
drottningunni af Englandi, nóg
boöiö. Svo fór aö ástarsambandið
fór út um þúfur og sneri prinsinn
sér þá að ballettdansaranum og
leikkonunni Finolu Hughes, sem
geröi garöinn frægan í Staying
Alive með John Travolta. Ekki
stóö þaö lengi yfir. Þá tók Carolyn
Herbert við, 21 árs gömul snót af
aðalsættum, og varpaði þá móöir
prinsins öndinni léttar, enda
stúlkan aö öllu leyti fyllilega
samboöin prinsinum. Meira aö
segja þótti hún töluvert lík Díönu
prinsessu, sem var nú ekki verra.
En þá kom prinsinn auga á stóru
ástina (aö eigin sögn), fyrirsæt-
una Katie Rabett, 23 ára. Þau hitt-
ust á listasýningu (rákust hvort á
annað í orösins fyllstu merkingu)
og það var ekki aö sökum að
spyrja: Símanúmer og nafn í
rauðu bókina og Katie fékk að
hitta mömmu Andrews. Hún lagöi
blessun sína yfir sambandiö,
stúlkan er dóttir þekkts læknis í
London og þar að auki þekkt fyrir-
sæta úr blöðum eins og Vogue og
hefur leikið í einni kvikmynd.
En... þá kom stóra bomban. Katie
haföi á sínum yngri árum látiö
taka af sér nektarmynd sem birt-
ist í öllum enskum blööum innan
tíðar. Og þar meö var draumurinn
úti! Þaö verður spennandi aö vita
hvaö Andrew prins gerir næst.
Þaö er bara vonandi aö hann hafi
gaman af því aö standa í þessu!
Andrew prins er nú í leit aó nýjum
ævintýrum eftir að síðasta ástar-
sambandið fór út um þúfur við óvænta
uppljóstrun.
Carolyn Herbert er með blátt blóð, en Andrew þótti hún
ekki nógu skemmtileg.
Hárfín uppljóstrun
Joan Collins heitir ein aðalleikkonan í Dynasty-þáttunum og nýtur
hún nú feikna vinsælda í þeim löndum þar sem sjónvarpsþátturinn er
sýndur. Hefur henni jafnvel tekist að slá sjálfan J.R. út af vinsælda-
listunum, en hún leikur álíka geðþekka persónu og J.R. er í Dallas-
þáttunum!
Á dögunum brá þó svo við að Joan Collins var ekki í sínu besta skapi
er hún snæddi kvöldverð í Gstaad í Sviss með fylgisveini sínum,
hinum sænska Peter Holm. Ástæðan var víst sú að hóteiþerna ein kom
óvænt inn í herbergi þeirra og horfði aðdáunaraugum á fallega
kastaníubrúna hárið hennar Joan Collins. Gallinn var bara sá að það
var ekki á höfðinu á leikkonunni í það skiptið!
ZZ ViKan 18. tbl.