Vikan


Vikan - 14.06.1984, Side 8

Vikan - 14.06.1984, Side 8
.. R Jf J ’liP" - - • ó! 1 — T° iL ■BS| "" mj £ 3. Texti og mynd: Ragnar Th. Toyota Tercel 4WD var einn þeirra bíla sem hvað mesta athygli vöktu á bílasýningunni Auto '84. - Meðal aukabúnaðar, sem hægt er að fá á þennan bíl, er sóllúga, hvaða gagn sem má svo hafa af henni hér á landi. Bíll með herslumun Þegar mér bauðst að hafa og prófa Toyota Tercel 4WD var ekki laust við að ég yrði dalitið smeykur viö tilhugsunina aö skrifa um bíl. Mér fannst einhvern veginn ég ekki vera nógu klár til þess að geta fundið ailt aö bílnum, svo sem tilheyrir í bilaprófunum. En svo fór ég aö hugsa: Þarf maður alltaf að geta fundiö aö öllu til þess aö lita út fyrir aö hafa vit á hlutunum? Svo mikið er vist aö ég var ansi hress með vagninn og gæti bara vel hugsað mér að skipta. Skyldi vera hægt að borga milligjöfina meðkreditkorti? Það fyrsta sem maður tekur eftir í Tercelnum eru afspyrnu góðar bremsur, ég meira aö segja prófaði það oftar en einu sinni að láta hann draga hjól. En það var ekki fyrr en ég klossaði hann á þó nokkurri ferð að það rétt tókst. Einnig rekur maöur fljótt augun í að þaö er óvenju hátt til lofts og plássiö aftur i er hreint ótrúlegt, akkúrat það sem mig hefur alltaf vantaö. Það er fleira í þessum bíl sem mig hefur alltaf vantað, eins og til dæmis 5. gírinn. Hversu oft hefur maður ekki sagt viö sjálfan sig: ja, nú vantar bara fimmta gírinn. Og þaö er alveg satt. Síðast en ekki sist af því að sem mig hefur alltaf vantað er fjór- hjóladrif. Eg vildi bara óska þess að ég þyrfti aldrei aö keyra á keöj- um framar. En eins og veturnir hafa verið undanfarin ár á þessum síöustu og verstu tímum bla bla... hefur bara alls ekki veitt af því að vera á keðjum eða jeppa. Og fyrir þá sem ekki mega kaupa sér jeppa (eða þannig, sko) er fjórhjóladrif- inn fólksbíll aö öllum líkindum rétta svarið, auk þess sem svona fjórhjóladrifsfólksbíll eyðir ekki neinu, miöað við jeppa. Fyrir menn, sem eru á ferðinni alla daga, sama hvernig viðrar, er Tercelinn alveg kjörinn. Sjálfur hef ég aldrei átt jeppa en samanburðurinn viö jeppa er heldur ekki sanngjarn því Tercel- inn er fjórhjóladrifinn fólksbíll en ekki jeppi. Það má kannski segja að hann sé venjulegur framhjóla- drifsbíll meö herslumun. Þar sem aöeins „vantar herslumuninn” á að aðrir komist kemst Toyota Tercel. Nú er ég kannski farinn að hæla bílnum of mikið því ég hef jú aldrei prófað bílinn í snjó en hef þó orð annarra fyrir því. En það fór þó aldrei svo aö maöur fyndi ekki eitthvað að. Mér fannst hann vera þungur í stýri. Það er kannski óhjákvæmilegt í 4WD bílum. Að öðru leyti líkaði mér vel viö bílinn en ef ég ætti hann mundi ég útvega mér spoiler aftan á hann því eins og aðrir station-bílar eys hann töluvert á afturrúðuna. Þó svo að vinnukona og rúðupiss sé á honum að aftan er alltaf öruggara og betra aö vera ekki alltaf fiktandi í tökkum og horfandi í spegilinn aö óþörfu þegar maður á að hafa hug- ann viðaksturinn. Ps. Hann liggur eins og klessa. 8 Vikan Z4.tbl. \

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.