Vikan - 14.06.1984, Blaðsíða 12
Ég ætla að verða lögga þegar ég verð stór og þá ætla ég að taka þig fastan. . .
Ég ætla að verða dansikona og lika snyrtikona. . .
Umhverfið mótar oft hugmyndir barna um það hvað þau ætla að verða þegar
þau verða stór en stundum er óskastarfið eitthvað sem þau álíta meira spennandi
en hversdagslífið, eins og til dæmis löggustarfið og brunaliðsmannastarfið. Flest
börn ætla sér einhvern tíma á barnsaldrinum að verða eitthvað visst og sum eru
alltaf að skipta um skoðun. Stelpa, sem vill verða flugfreyja í dag, er á morgun
staðráðin i því að verða söngkona. Blaðamaður og Ijósmyndari brugðu sér í
leiðangur með nokkrum fyrrverandi sexárabekkingum úr ísaksskóla og fylgdust
með þeim að störfum i draumastarfinu þann daginn. Litlu listaverkin lánuðu þau
fúslega en þau prýddu ganga ísaksskóla siðastliðinn vetur.
Á næstu opnu er svo að finna konur og karla sem einu sinni voru lítil og vildu
vera hitt og þetta.
Brynja Sif Kaaber
„Eg er að hugsa um að verða hjúkrunarkona því mér finnst
gaman í hjúkrunarkonuleik og ég á hjúkrunarkonudót. Fræ
hennar mömmu, sem heitir Erla, er hjúkrunarkona og ég ætl
fara í hjúkrunarkonuskóla þegar ég verð stór eins og hún gerð
()g þar með rauk Br> nja Sil á stofugang á barnadeild Landspí
; lans og létu litlir sjúklingar sér það vel líka.
Sigrún Kvaran Ólafsdóttir
„Eg vil helst veröa klippingakona þvi ég
held að það sé svo gaman að klippa. Eg fer
líka stundum í hárgreiösluleik.” Þegar
Sigrún kvaddi hárgreiðslustofuna Saloon
Ritz á Laugaveginum spurði blaðamaður
hana hvort hún hefði ennþá áhuga: „Jahá,
ég ætla sko að reyna að standa við það.”
Nicolas O'Keeffe
„Eg ætla að verða lögga
af því að pabbi þekkir svo
margar löggur, það eru vinir hans,
og svo hjálpa löggurnar krökkum
og stoppa umferðina. Eg myndi
helst vilja vera lögga á mótorhjóli. Afi minn var her-
maður i Bretlandi og hann var með þeim sem sigr-
uðu mest i stríðinu. Eg vildi samt ekki vera her-
maður."
Þegar Nicolas var búinn að skrifa sektarmiða á bíl lögreglu-
manns við Hverfisgötuna spurði hann góðu lögguna, sein hafði
lánað honmn jakkann sinn og húfuna í tilefni dagsins: Og hvenær
fæ ég svo peningana?