Vikan


Vikan - 14.06.1984, Síða 24

Vikan - 14.06.1984, Síða 24
\f Heimilið Hárgreiðslur sem mörkuðu tímamót! Það eru víst engar ýkjur þegar sagt er að hártískan breytist á hverju ári. Leiðtogarnir í hárgreiðslu þreytast aldrei á að finna upp á einhverju nýju og auðvitað hafa tækninýjungar sitt að segja. En ekki er öllum hársveiflum tekið jafnvel af hinum almenna notanda. Það breytir þó ekki því að sumar greiðslur hafa hlotið heimsfrægð, eins og hár- netið hans Roberts Lobetta. Það var sannkallað hárnet og var höfundurinn 11 klukkustundir að skapa það úr hári módelsins. Hin hárrísandi greiðsla Trevor Sorbie, sem kallaðist THE AZTEC, vakti einnig mikla athygli á sínum tíma og varð fyrirmynd margra pönkara sem jafnvel notuðu eggjahvítu til að ná þessu ákjósanlega útliti. Geimöldin! Þessi greiðsla kom fram árið 1964 og er eftir engan annan en hinn eina sanna VIDAL SASSOON. Þar með voru rúllur og túperingar úr sögunni en við tók frjálsleg hárgreiðsla í stíl við lit- skrúðugan fatnað þess tima.________ Víð tíska og hárið út um allt í stíl. Þessi greiðsla frá 1983 er eft- ir Jacques Dessange og er enn í gengiðígarí^ Margar nýjungar hafa sprottið undir handleiðslu VIDAL SASSOON og svo er um þessa greiðslu sem einn af lærisvéin- um hans, Christopher Brooker, hannaði árið 1974. Hún varð mjög vinsæl á sínum tíma hjá Hárnetið hans Roberts Lobetta vakti mikla athygli á sínum tímaJ Hann fléttaði það og hnýtti það úr hári módelsins og var heilar 11 klukkustundir að því! Þegar því var lokið var klukkan 2 um nótt og þá var fyrst hægt að fara að mynda vesalings módelið! Robert Lobetta lítur á greiðslurnar sínar sem skúlptúr frekar en tísku. báðum kynjum! 24 Vikan 24. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.