Vikan - 14.06.1984, Page 24
\f Heimilið
Hárgreiðslur
sem mörkuðu tímamót!
Það eru víst engar ýkjur þegar sagt er að hártískan breytist á hverju ári.
Leiðtogarnir í hárgreiðslu þreytast aldrei á að finna upp á einhverju nýju og
auðvitað hafa tækninýjungar sitt að segja.
En ekki er öllum hársveiflum tekið jafnvel af hinum almenna notanda. Það
breytir þó ekki því að sumar greiðslur hafa hlotið heimsfrægð, eins og hár-
netið hans Roberts Lobetta. Það var sannkallað hárnet og var höfundurinn
11 klukkustundir að skapa það úr hári módelsins. Hin hárrísandi greiðsla
Trevor Sorbie, sem kallaðist THE AZTEC, vakti einnig mikla athygli á sínum
tíma og varð fyrirmynd margra pönkara sem jafnvel notuðu eggjahvítu til að
ná þessu ákjósanlega útliti.
Geimöldin! Þessi greiðsla kom
fram árið 1964 og er eftir engan
annan en hinn eina sanna VIDAL
SASSOON. Þar með voru rúllur og
túperingar úr sögunni en við tók
frjálsleg hárgreiðsla í stíl við lit-
skrúðugan fatnað þess tima.________
Víð tíska og hárið út um allt í
stíl. Þessi greiðsla frá 1983 er eft-
ir Jacques Dessange og er enn í
gengiðígarí^
Margar nýjungar hafa sprottið
undir handleiðslu VIDAL
SASSOON og svo er um þessa
greiðslu sem einn af lærisvéin-
um hans, Christopher Brooker,
hannaði árið 1974. Hún varð
mjög vinsæl á sínum tíma hjá
Hárnetið hans Roberts Lobetta vakti mikla athygli á sínum tímaJ
Hann fléttaði það og hnýtti það úr hári módelsins og var heilar 11
klukkustundir að því! Þegar því var lokið var klukkan 2 um nótt og
þá var fyrst hægt að fara að mynda vesalings módelið! Robert
Lobetta lítur á greiðslurnar sínar sem skúlptúr frekar en tísku.
báðum kynjum!
24 Vikan 24. tbl.