Vikan


Vikan - 14.06.1984, Blaðsíða 27

Vikan - 14.06.1984, Blaðsíða 27
unar á því í huganum að ég reyndi að draga fyrrverandi verðbólgu niður meðan hann reynir eftir bestu getu aö fá hana upp. „Það var heldur ekki svo hræðilegt. Maöur venst þessu,” bætti ég við. Maðurinn horföi rannsakandi á mig. Ég sá að hann trúði þessu ekki eins vel og staöreyndinni um veðrið. Næsta spurning var í hans huga alveg sjálfsagt framhald. „Er satt aö það sé ekki hægt að kaupa bjór álslandi?” Ég játti því brosandi, tíndi fram allar röksemdirnar um að það þætti sannaö að bjór yrði til að auka enn á drykkju íslendinga. „Hvaö drekka menn þá í staö- inn?” spurði maðurinn þrár. Ég var að byrja að verða leið á þessu, reyndi samt aö halda í síð- ustu leifarnar af ljómanum á andlitinu. „Létt og sterk vín,” svaraði ég og ég er ekki frá því að ég hafi verið oröin heldur stutt í spuna. „Ekki getur þaö verið betra en að drekka bjór,” var skoðun mannsins. „Nei,” svaraði ég. „En ef bjórinn yrði leyfður þykir mönnum líklegt að hann myndi bætast ofan á þaö sem drukkið er fyrir, menn myndu ekki hætta við neittístaðinn.” „Á, há,” sagði maðurinn. Nú þóttist ég alveg búin að sigra hann. En það var meira blóö í kúnni og hann var ekkert á því að gefast upp. „Svo er bannað að hafa hunda, er það ekki?” Mér vaföist tunga um tönn. Þurfti hann nú endilega að koma meö þetta líka? Ég saup á ölinu og kinkaði kolli. „Það hlýtur að vera hræðilegt. Hvað gera allar gömlu konurnar sem eru aleinar heima allan dag- inn?” Ég skaut mínu allra harð- asta skoti. „Þær hafa barnabörnin sín sem oft koma í heimsókn. Það er ekki eins og hér í Danmörku að þjóðin er hætt að eiga börn.” Bað ömmu mína um leið afsökunar í huganum á því hvað ég kem sjald- an til hennar. „Auk þess er það sóðalegt og óhollt fyrir dýrin aö hafa þau í borg,” bætti ég við. „Hundur á heima úti í sveit þar sem hann getur hlaupiðum.” Maðurinn horfði a mig. Mér fannst augnatillit hans æ meira rannsakandi. Og það var greini- legt að hann trúöi mér ekki alveg. Ég bölvaði stöðu minni í hugan- um. Hér stóð ég og varði land mitt sem ég hikaði sjálf ekki viö að tala illa um, bæði oft og mikið. En ég vissi að hversu mikiö sem ég hall- mælti því sjálf og hlustaði á aöra íslendinga hallmæla því þá stóð ég ekki þegjandi og hlustaði á útlend- ing segja eitthvaö ljótt um land mitt eða þjóö. „Þetta er nú samt fátæk þjóð,” sagði maöurinn meö spurnartón í röddinni. „Nei, nei,” svaraði ég með sótt- hitakenndum ákafa. „íslendingar eru vel stæöir og þaö sem meira er, velmegunin skiptist jafnt á milli þjóöarinnar. Það er enginn fátækur á íslandi.” Og reyndi aö gleyma konum sem ég þekki sem vinna allan daginn í verksmiðjum fyrir svo lítið kaup að þær geta hvorki lifað né dáiö af því. Síöasta skot mannsins var þó það sem fékk mig til aö gefast upp. Ég gat engu svarað, stóö bara og þagði, horföi niður í ölið og leiðilla. „Ef þetta er allt svona dásam- legt á Islandi, hvað ertu þá að gera hérna?” Bílaframleiðsla í Danmörku Danir ætla ekki að missa af bíla- kapphlaupinu mikla. Danska ríkið pungaði út 275 milljónum króna (í íslenskum talið) svo aö hægt væri að undirbúa framleiðslu á raf- magnsbílum þar í landi. „Vonin” (Hope) er komin á götuna. Þetta er fjögurra manna rafbíll meö 20 hestafla mótor og orkan fæst úr 12 rafgeymum sem leynast undir húddinu. Við venju- legar aöstæöur getur maður kom- ist 100 kílómetra á einni hleöslu á allt að 80 kílómetra hraða. Hljóðlausi Daninn hefur tvennar framdyr og einar bakdyr. Honum er stjórnað með tveim fótstigum (pedölum), bremsu og hraða-fót- stigi. Gírarnir eru tveir: einn áfram og einn afturábak. Hleðslan fer fram að næturlagi: maöur stingur bílnum í samband að kvöldi og að morgni er hann endurnærður. A Norður-Jótlandi vinna 2000 manns viö aö framleiða „Von- ina”. Danska fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að fella niöur sölu- skatt af bílunum. „Vonin” kostar um það bil 231.000 ísl. krónur þar í landi en til dæmis kostar Volks- wagen Golf 379.500 krónur og Opel Rekord 528.000. Ekki höfum við enn frétt hvort von er á „Voninni” hingaötil lands... ,Vonin" er framhlaðningur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.