Vikan


Vikan - 14.06.1984, Side 40

Vikan - 14.06.1984, Side 40
Thermor Áva/lt fyrír/iggjandi frá Thermor, Frakklandi: Eldavélar Eldavélahellur Blástursbökunarofnar og fjölbreytt úrval annarra heimilistækja. Góð greiðslukjör. Frábær gæði — mjög hagstætt verð. Komið — sjáið — sannfærist. KJÖLUR SF. Hverfisgötu 37, Reykjavík. Simar: 21490-21845. Fimm mínútur með Hjálp, ég get ekki sofnað... Eg hef gert merkilega uppgötv- un. Þær nætur sem ég reyni aö sofna eftir aö ég hef tekið svefn- pillur kemur mér hreinlega ekki dúr á auga. Hins vegar sef ég eins og steinn þær nætur sem ég ekki tek svefnpillur. I nótt tók ég eina pillu. Ég tók á mig náöir skömmu eftir miönætti og þegar ég haföi legið nokkrar mínútur varö ég órólegur þegar ég áttaöi mig á því að ég hafði ekki blundaö enn svo ég tók eina svona til öryggis. Síðan skreið ég aftur upp í rúm og lá og starði upp í loftið aftur, lagöist á magann, lagðist á hliðina og svo hina hliðina, með hendur undir hnakka og meö beina fætur og beygða, lokuð augu og opin. Eg var að byrja að örvænta því svefn- laus nótt var það versta sem ég vissi. — Maríanna, sagði ég áhyggju- fullur, ég get ekki sofið. Hún svaf. Ég ýtti svolítið við henni. — Ég get ekkisotið! Hún hreyfði sig ofurlítiö. — Taktu svefnpillu, tautaði hún fjarrænt. Ég er búinn að því. Það dugði ekki. — Hættu þá að taka þessar heimskulegu pillur. Hún svaf eins og steinn áfram. Ég brölti fram úr og fór fram í baðherbergi til að sjá mig í spegl- inum. Ég var fölur og örþreyttui' aö sjá, svefnlausar nætur taka jafnan mjög þungt á mig. Ég fann fyrir mikilli tómleikatilfinningu i maganum og fór fram í eldhús til að athuga hvort nokkuö væri aö hafa í ísskápnum. Þar voru nokkrir bitar af nýjum, reyktum laxi og dós af grænlenskum rækjum, nautakjöt meö lauk og hálfur kjúklingur. Ég byrjaði á kjúklingnum, fékk mér pilsner með og opnaði dósina með litlu græn- lensku ormunum. Svo fékk ég hug- mynd. Bjór og snafs gera mig venjulega syfjaðan svo ég setti snafsinn í kæli. Þegar ég var búinn með rækjurnar og laxinn og hafði skolað því niður með smáeldvatni fannst mér ég allur miklu betri. Tómleikatilfinningin í maganum var hins vegar ekki með öllu horfin. Ég bragðaði á nautakjötinu eftir að hafa brasað það svolítið í smjöri á pönnu, fyrir luktum eldhúsdyrum. Eg var búinn með pilsnerinn og ég fékk mér bjór því ég er vanur að verða syfjaður af bjór. Svo borðaöi ég nautakjötið. Loks fékk ég mér smásnafs til að skola þessu niður. Ég leit enn einu sinni yfir ísskápinn en þar var ekkert að sjá 40 Vikan 24. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.