Vikan


Vikan - 14.06.1984, Side 42

Vikan - 14.06.1984, Side 42
“kar Framhaldssaga Fyrst var yngra starfsliöi fylgt um borö í DC-9-vélina. Þegar Folvik gekk út sá hann samanrek- inn búk Makarovs. Hann var aö því er virtist bæði að fylgjast með heiðursverðinum og hópi bæjar- búa sem stóð viö girðingarnar og veifaði norskum fánum. Há vír- girðingin náöi frá turninum að stjórnarhúsinu, kannski 10 metra, og fólkið stóö eins og síldar í tunnu handan hennar. Folvik þekkti Annie af síðu hárinu sem flóði undan glæsilegri loðhúfu. Hún sá hann, hrópaði og veifaði fánanum hátt á lofti. Hann lyfti hendinni í kveðjuskyni, gripinn sektarkennd yfir að eftirláta henni alla ábyrgð. Hún sendi honum fingurkoss og kallaði: „Gott flug.” Hann var feginn þegar annar tveggja blá- klæddra norskra lögreglumanna á vakt gaf honum merki um að hraða sér. Það var léttir að lög- reglan skyldi verða eftir. Hann rýndi úr gluggasætinu út um perspex-hringinn, reyndi að sjá Annie bregöa fyrir í síðasta sinn. Hún var dásamleg kona, inn- blástur. Heiðursvörðurinn stóð í réttstööu þegar sýslumaðurinn kom út. Makarov var við hlið hans, þrammaði stirður eins og brúða í frakkanum sínum. Folvik heyröi glöggt að hópurinn söng norska þjóðsönginn. Uppi yfir honum sá hann fölt andlit and- styggilega unga eftirlitsmannsins fast við glerið. Vöröurinn lyfti vopnum og sýslumaðurinn flýtti sér að yfir- fara hann, andlit hans jafnsvip- laust og andlit Makarovs. Það sá- ust engin merki um Stolypin hers- höfðingja. Það hlaut að vera af ásettu ráði, útreiknað til að sýna að af þessum tveimur jöfnu stjórn- endum í orði var sá sovéski jafn- ari á borði. Folvik hafði lært þaö síðustu mánuði hvað Rússar lögðu ofboðslega áherslu á tignarröö og formsatriöi. 42 Vikan 24. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.