Vikan - 14.06.1984, Page 56
Bændur og björgunarmenn!
/ nœstu VIKU verður á dagskrá farkostur sem er ekki alveg eins og flestir
aðrir. Hann er rauður að lit, hefur þrjú hjól, þar af tvö að aftan, og kemst
nœstum hvað sem er (,,... og hakkar nœstum hvað sem er”). Þar að auki er
mjög auðvelt að stofna lífi sínu og limum í hœttu á honum. Já, VIKAN hœtti
sér á bak einum slíkum farkosti sem heitir raunar Honda ATC 250 R og frá
því verður greint í máli og mgndum.
Hjólið mitt
Eins oq lesendur hafa þegar orðið varir við situr Dóra Stefánsdóttir blaða-
maður úti í Kaupmannahöfn um þessar mundir. Meðalþess sem hún situr á
er hjólið hennar. Að vísu hafði hún kynnst farartœki af þessu tagi heima í
Regkjavík en í þessari paradís reiðhjólamennskunnar kynntist hún því á
alveg nýjan hátt — og segir frá þeirri lífsreynslu sinni í nœstu VIKU.
Jónína Ben. velur sér óléttuföt úr
sumarlínunni á Laugaveginum
Ófrískar konur þurfa föt á kroppinn eins og aðrar konur. Vandinn er bara sá
að þær þurfa víðari föt en gengur og gerist og skapar það oft vandamálþví að
fáar sérverslanir er að finna hér á landi með óléttuföt.
Jónína Benediktsdóttir leikfimikennari komst á dögunum að raun um að
sumartískan í ár hentar ófrískum konum afskaplega vel. í nœstu VIKU
fylgjum við Jónínu Ben. eftir niður Laugaveginn og kíkjum á afraksturinn af
þeirri ferð hennar.
Da da ra daddadaaa ...
Þetta á að vera eins og lúðrablástur og það er ekki að ástœðulausu sem við
blásum í lúðra, ónei. í nœstu VIKU verður nefnilega plakat, ójá. I nœstu
VIKU verður heldur ekkert venjulegt plakat, ónei. Það má kannski segja að i
nœstu VIKU verði plakat af MI-CHA-EL JACK-SON, ójá. Þá vitið þið hver
verður í nœstu VIKU.
Tvær handavinnuuppskriftir
- á hann og hana!
Vesti úr bendlaböndum eru mjög vinsœl um þessar mundir. I
nœstu VIKU birtum við uppskrift að léttu sumarvesti, einmitt ur
bendlaböndum. En við gleymum ekki karlpeningnum! I nœstu
VIKU birtum við einnig uppskrift að mjög fallegri
karlmannapeysu með útprjónuðu mynstri á bol og ermum.