Vikan


Vikan - 14.06.1984, Page 61

Vikan - 14.06.1984, Page 61
KYSSARARNIR Texti: Höróur Þaö var á síðastliðnu hausti aö út spurðist að hin gamla, góða Kiss væri að leggja upp laupana. Kkki var laust viö aö margir yröu hryggir við þessa fregn en eins og allir vita er Kiss ein besta barna- pia sem til er. Vitað er um hús- móður í Breiðholti sem haföi ekki efni á videotæki fyrir börnin sín en keypti þess i stað allar Kissplötur sem út hafa komið. Þegar hún svo þurfti að bregöa sér frá dró hún þær fram, kenndi krökkunum á grammófóninn og lét síðan ekki sja sig fyrr en seinna þann dag. Þegar hún kom svo heim sátu börnin öll saman í friöi og spekt fyrir framan hátalarana í hrein- um og klárum transi og hlustuöu á goðin. Blessað ungviöiö hafði ver- ið svo bergnumið af tónlistinni að gleymst hafði að fara á klósettiö allan daginn og varð því mikill iéttir þegar mamma kom og slökkti. Þessi stutta saga sýnir betur en margt annað hve mikiö gildi Kiss hefur í hugarheimi yngri kynslóðarinnar. Eins og áöur sagði var uppi orö- rómur um niðurlagningu hljóm- sveitarinnar og hann fékk byr undir báöa vængi þegar platan Lick It Up kom ut þar sem þeir fe- lagar höfðu skrapað af sér máln- inguna og sáust allir eins og þeir voru í raun réttri utan á plötuum- slaginu. Síöan þá hefur, eins og orðrómurinn gerði ráð fyrir, lítið heyrsttilþeirra. Nýjustu frettir herma þo að allt þetta tal um að hljómsveitin sé að hætta sé ekki rétt. Von er á plötu meö henni þegar líða tekur á sumarið og þá mun hún einnegin vera komin með nýtt „image". Því geta barnapiur og aörir, sem þurfa að roa krakka, andað léttar. Hér innan um þessi orö eru svo nokkrar myndir af þeim Kyssur- um á hinum ýmsu skeiöum lífdaga sinna, svona rétt til aö minna á hvernigþeirlitunúut. Nú mun hefja göngu sína nýr þáttur hér á poppsíðum Vikunnar. Eins og nafnið gefur til kynna samanstendur hann af smáum myndum af hin- um og þessum sem einhverra hluta vegna teljast merkilegri en aðrir. Sá sem ríður á vaðið er enginn annar en Shakin’ Stevens, sá mikli mæðra- vinur og rokkabillíhöfðingi. Nafni hans hefur oft verið snúið á íslensku og þá er hann kallaöur Stebbi hristingur en þegar hitnar í kolunum á hljómleikum hans er reyndar miklu meira við hæfi að kalla hann Stebba titring eða jafnvel Stebba kreisting. Hvað sem öllum nafngiftum og leikjum líður var Stebbi skíröur Michael Barrett. Það hefur sennilega gerst stuttu eftir fæðingu hans sem átti sér stað 4. mars 1948 í Cardiff í Wales. Hann var yngstur ellefu systkina og fljótlega tók að bera á því að drengurinn var óvenju liðugur í hnjánum og varð það eflaust þess vald- andi að hann lagði rokkabillíið fyrir sig, en eins og allir vita þá útheimtir slik tónlist mikla snúninga á þeim líkamshlutum. Húsmæður til sjávar og sveita og dætur ykkarl Klippið þessa mynd út og gerið ykkur greiða með því að hengja hristinginn ykkar hvar sem þið viljið, til dæmis á ísskápinn, og lýsið upp gráan hversdagsleikann um leið og þið bætið heilsuna því að eins og allir vita er ekkert hollara hjart- anu en nokkur heljarstökk. 24. tbl. Vikan 6x

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.