Vikan - 20.12.1984, Page 4
4 Vikan 45. tbl.
Silfurlauf ó
ávaxta-
skálinni
Stjörnur úr
tann-
stönglum
Jólastjarna úr filti og
hrísgrjónum
Börn ráða auðveldlega við að gera þessa mjúku jólastjörnu. Hún er klippt úr filt
og fara tvö stykki í hverja stjörnu. Áður en klárað er að sauma hana saman er hún
fyllt með hrísgrjónum. Að lokum festið þið í
hana bómullarþráð, tvinna eða gullþráð
Stjörnuskin á rúðum
Það er alltaf fallegt að skreyta glugga með jólaskrauti á jólum. En það þarf ekki
bara að vera úr pappír, könglum eða piparkökudeigi. Hér hefur verið notaður úði á
rúðurnar, bæði inni og úti, til að skapa fallega jólastemmningu. Mynstrið er klippt út
úr pappír eða plasti og síðan úðað í gegnum það. Eftir jólin er auðvelt að ná þessu
af rúðunum. Fyrst skafið þið það af með rakvélarblaði, þvoið síðan rúðuna með
terpentínu og pússið að lokum á venjulegan hátt.
Þessi skreyting gerir það að verkum
að jafnvel ávaxtaskálin kemst í jólabún
ing. Hér eru klippt lauf út úr gullpappír
eða siifurpappír og fara tvö stykki í
hvert lauf. Límið helmingana saman ut-
an um blómavír sem síðan er stungið
inn á milli ávaxtanna. Einfalt en hátíð-
legt.
á jólatréð
Tannstönglar eru til margar hluta nyt-
samlegir. Til dæmis er hægt að búa til
úr þeim svona einfaldar jólastjörnur á
jólatré. Þá límið þið tannstönglana í þrí-
hyrning og síðan leggið þig tvo og tvo
þríhyrninga saman þannig að þeir myndi
stjörnuna.