Vikan


Vikan - 04.04.1985, Blaðsíða 6

Vikan - 04.04.1985, Blaðsíða 6
Fyrsta sunnudag í mars var sérstæð rallkeppni haldin í Laugardalshöllinni. Þar var rallað á hjóla- stólum og keppendurnir voru ýmsir vel þekktir menn í þjóðfélaginu. I undanrásum var þeim skipt í þrjá flokka, alþingismenn, fatlaða og í- þróttamenn. Að þeirri keppni lokinni fengu tveir efstu úr hverjum flokki að keppa til úrslita. Það var Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, sem stóð fyrir þessari keppni. Hún var haldin með það fyrir augum að vekja athygli fólks á þeim vanda sem fatlaðir þurfa að eiga við í daglegu lífi. Keppnin fór þannig fram að braut var lögð í Laugardalshöllinni með margs konar hindrunum sem voru látnar líkjast því sem fatlaðir þurfa að eiga við oft á dag. Til dæmis um hindranirnar, sem keppendurnir þurftu að glíma við, má nefna ská- braut sem reyndist mörgum keppandanum erfið. Það vakti til dæmis mikla athygli að sterkasti maður heims, Jón Páll Sigmarsson, strandaði á henni. Hann sagði eftir keppnina að hann hefði lært á þessu að maður þurfi að hafa góða stjórn á líkamanum í hjólastól. Þar duga kraftarnir einir skammt. Margir áhorfendur mættu í höllina til að fylgjast með þessari keppni og er óhætt að fullyrða að þeir skemmtu sér ekki síður en keppendurnir sjálfir. Hér birtum við svo úrslit keppninnar. Nr. 1 Jón Ragnarsson, 1 min., 45,9 sekúndur. Nr. 2 Sigþrúður Pálsdóttir, 1 min., 51,97 sekúndur. Nr. 3 Þorsteinn Pálsson, 2 min., 7,87 sekúndur. Á eftir þeim komu Guðný Guðnadóttir, Jónas Tryggvason og Friðrik Sophusson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.