Vikan


Vikan - 04.04.1985, Blaðsíða 37

Vikan - 04.04.1985, Blaðsíða 37
marleyfisveður að finna? . ;i 'ýfer-í-;/■■■; j,1 . * * ,• um 27 stigum. Vitaskuld getur oröið heitara í fylkinu, til dæm- is um 46 gráður í Dauðadaln- um. Yfir hásumarið leggst þoka yfir Los Angeles snemma á morgnana. Hún er þó yfirleitt horfin um miðjan morgun. Þessari þoku skyldi þó ekki ruglað saman við iðnaðaróloftið sem borgin er fræg fyrir. Ef það væri ekki fyrir hendi væri Los 1 Angeles tvímælalaust paradís 1 sóldýrkenda. Veðurfræðingur morgunþáttar BBC1 sjónvarps- ins, Breakfast Time, gefur Kaliforníu níu í einkunn af tíu mögulegum. Það þarf fáum að koma á óvart að Spánn er sannkölluð paradís sóldýrkenda. — Þarna er aðallega átt við Miðjarðar- hafsstrendurnar. Á suður- ströndinni, Costa del Sol, er Malaga. Séu veðurskýrslur þaðan skoðaðar verður útkom- an ákaflega hagstæð. Sólin skin nær látlaust í júni, júlí og ágúst. Hitinn fer reyndar oft á tíðum talsvert upp fyrir 27 stig í júnílok, júlí og ágúst í sjötíu prósent raka þannig að sumum verður hálfómótt seinni hluta dagsins. Hafgolan gerir þó sitt gagn en hlýir vindar frá Norður- Afríku gera áhrif hennar oft að engu og hleypa hitanum gjarnan upp í fjörutíu stig. Kvöldin eru þægilegasti tíminn þarna við Miðjarðarhafið. Lægsti næturhiti, sem mælst hefur í Malaga að sumri til, var þrettán stig. — Spánn fær átta í einkunn af tíu mögulegum. Smáeyjan Malta í Miðjarðarhafi er einnig paradís sóldýrkenda. í höfuðborginni Vallettu skín sólin nær látlaust sumarmánuðina þrjá, stundum í meira en tólf stundir á dag. Svo til það eina, sem getur sett strik í veðurreikninginn, er sirocco, sunnanvindurinn frá Saharaeyðimörkinni. Honum fylgir fínt sandrok eða móða. Á kvöldin lækkar hitinn á Möltu talsvert og þau eru svöl og þægileg. Rakastigið er nokkuð hátt allan sólarhringinn en þó á engan hátt til óþæginda. Að sumu leyti, seg- ir veðurfræðingur BBC1, er veðurfarið á Möltu fullkomið fyrir þá sem leita sólar í sumar- leyfinu umfram allt annað. Einkunnin erátta. Það er sáralítill munur á veðrinu á Hawaiieyjum frá maí til nóvembermánaðar. Hlýjasti og þurrasti tíminn er þó sumar- mánuðirnir þrír, júní, júlí og ágúst. Á norðausturhlutanum rignir reyndar bæði oft og vel en suðvesturhlutinn er í góðu skjóli og því yfirleitt þurr. Höfuðborgin Honolulu er á þurrari hluta Oahu-eyjar. Meðalúrkoman þar í júní, júlí og ágúst er um 2,5 sentímetrar. Til samanburðar er hún um helm- ingi meiri í London á sama tíma. Sólin skín í um tíu klukku- stundir á dag í Honolulu og hlýr sjórinn kringum eyjarnar gerir það að verkum að hitamunur dags og nætur er fremur lítill. Rakastigið er venjulega í hærri kantinum. Hlýir hafvindar sjá þó um að loftslagið er alla jafna þægilegt. Þó kemur það fyrir á nóttunni að þörf er loftkælingar til að svefninn verði ótruflaður. Loftslagið á Hawaiieyjum fær sjö í einkunn af tíu mögulegum. Dvalarstaðir ferðamanna i Grikklandi skipta hundruðum. Þá er að finna á meginlandinu, á eyjunum, við stöðuvötn og sjó og oft á tíðum skin sólin í fjórtán klukkustundir á sólar- hring. Höfuðborgin Aþena er austan til í landinu, í einum þurrasta hluta Grikklands. Þar er sumarið langt og heitt og öðru hverju skellur á þrumu- veður. Síðdegin geta orðið dá- lítið erfið en oft blása svalandi norðanvindar, etesian, frá Eyjahafinu. Kvöldin eru notaleg blanda hita og um fimmtíu prósent raka en á daginn fer hitinn allt upp fyrir fjörutíu stig. Heitir sunnanvindar eiga það líka til að blása rykskýjum yfir höfuðborgina. Grikkland fær sjö í einkunn. Guernsey: I grein þeirri, sem framangreindar upplýsingar er að finna, er því miöur ekki greint frá einkunn ítalíu, Portúgals og nokkurra annarra vinsælla sólarlanda. Þess er þó skylt að geta að Bahamaeyjar fengu sjö í veðureinkunn, Túnis og Seychelleeyjar sex, Kenya fjóra og Indland og Hong Kong þrjá. — 'TVi ferðamannastraum og má segja að íbúafjöldi eyjarinnar tvöfald- ist frá því í maí og fram á haust. Á Guernsey er mikið af Á mjög góðu hóteli á Guernsey kostar vikan 22.776-24.524 krónur eftir árstíðum. Er þá inni- falið í verði flug, gisting og morgunverður. Þá geta menn einnig valið ódýrari hótel, eða svokölluð „guest houses", þar sem vikan í tveggja manna her- bergi kostar frá 19.191 krónu. Hver aukavika kostar síðan 4.677 krónur. Á mjög góðu hóteli á Jersey kostar vikan í tveggja manna herbergi frá 20.569 krónum og auka- vika frá 6.055 kr. Hægt er að velja um fjölmörg hótel og verð allt niður í 18.418 krónur. Baðströndin i Guernsey minnir á suðrænar slóðir og ekki sakar hið milda og góða loftslag. söfnum og er margt sem minnir á þegar Þjóðverjar hertóku eyna í síðari heimsstyrjöldinni. Englendingar hafa mikið sótt þangað í sumarfríum sínum og notið góða veðursins og baðstrandanna, auk þess að skoða gamlar minjar. Mikill gróður er á Guernsey og blasir hann hvarvetna við. Þá er mikið lagt upp úr sporti. Er í raun sama hvaða sport það er. Þó má nefna tennis, badminton, fótbolta, ásamt öðrum boltaleikjum, sjóskíði eru eftirsótt, reiðhjól eru mikið notuð, golf og hestaleigur eru einnig á staðnum. Eyjamenn hafa líka útbúið margar skemmtilegar gönguleiðir fyrir þá sem vilja hreyfa sig og njóta náttúrunnar í leiðinni. Fyrir þá sem eru orðnir leiðir á íbúum við Miðjarðarhafið en kjósa engu að síður sól og sjó ættu Ermarsundseyjarnar að henta ágætlega. 14. tbl. Vikan 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.