Vikan - 04.04.1985, Blaðsíða 36
Kalifornía
og Spánn fá
hæstu einkunn
Oumir eru því marki
brenndir að vilja helst fara í
sumarleyfi þangað sem nætur-
lífið er villtast. Aðrir sækjast
eftir fjölmenni, enn aðrir fá-
menni og þannig mætti lengi
telja. En eitt er það sem flestallir
sækjast eftir: að eyða sumar-
leyfinu sínu í góðu veðri.
Hvað er svo gott sumar-
leyfisveður? Sól og hiti, segir
þú, veðurbarinn og niðurrignd-
ur lesandi með kuldabólur í föl-
um kinnunum. Sjálfsagt eru
flestir sammála en stundum
getur orðið fullmikið af sól og
hita sums staðar í heiminum —
sér í lagi ef rakastigið er óhag-
stætt.
Hið fullkomna sumarleyfis-
veður er að finna þar sem rétt
jafnvægi er milli hita- og raka-
stigs, vindstyrks og sólskins.
Tökum dæmi: Í Quito, höfuð-
borg Ecuador, sem stendur í
2744 metra hæð yfir sjávarmáli í
Andesfjöllunum, er hitinn síð-
degis oftast um 22 stig og raka-
stigið um fimmtiu prósent: hinn
fullkomni hiti og raki til athafna.
Að nóttu til fer hitinn niður í sjö
stig og rakinn í 85 prósent: full-
komið til þess að hvilast. Sólin
skín i sjö klukkustundir og síð-
degis kemur stutt og hressileg
demba úr loftinu. Hið full-
komna veður, ekki satt? Quito-
búar hata það!
Hinn dæmigerði íslendingur
leitar eftir sumarleyfi þar sem
hann getur treyst því að sólin
skíni svikalaust og að helst
komi ekki deigur dropi úr lofti
meðan á dvöl hans stendur.
Ákjósanlegur hiti er þá á bilinu
átján til tuttugu og sjö stig i for-
sælu. Í sólskini er hitinn um átta
til tíu gráðum meiri. Fari hitinn
mikið upp fyrir þetta á líkaminn
í erfiðleikum með að kæla sig
með svita. Og þá gerist það
sama og með bílvélarnar: kerfið
ofhitnar og allt ,,fer i steik"! Inn
í þetta spilar rakastigið. Þá
daga sem það er hærra en
gengur og gerist er fólki ráðlagt
að borða meira salt og drekka
meira vatn en venjulega.
Að þeim forsendum fengn-
um, að fólk kjósi fyrst og
fremst að eyða sumarleyfinu í
þurrviðri og hita, hvert á það þá
að fara? Að öllum líkindum er
Kalifornía draumastaðurinn.
Miðað við veðrið í Los Angeles i
júní, júli og ágúst er þetta
sólskinsfylki Bandaríkjanna
paradís á jörðu. Sólin skín í
fjórtán stundir á dag og vart
kemur dropi úr lofti sumarmán-
uðina þrjá. Svöl Kyrrahafs-
golan heldur hitanum niðri, í
Suðræn
stemmning við
Ermarsundið
E rmarsundseyjarnar hafa
löngum heillað ferðamanninn
skeggjar gefa út sína eigin mynt
og frímerki. Efnahagslíf er mjög
þó ekki séu þær stórar. Jersey
er íslendingum vel kunn enda
verið mikill ferðamannastaður.
Þá er Guernsey ekki siður
vinsæl. Ferðaskrifstofa Kjart-
ans Helgasonar býður ferðir til
beggja þessara eyja alla föstu-
daga frá 4. apríl. Er þá flogið til
London og haldið beint til eyj-
anna með U.K. Air. i bakaleið
er hægt að staldra við í London
ef þess er óskað.
Báðar þessar eyjar eru sjálf-
stæð riki, hafa eigið þing og
stjórn en hafa þó sameiginlega
drottningu með Bretlandi. Eyja-
gott á báðum þessum eyjum og
litlir skattar. Til dæmis er eng-
inn söluskattur og er því mjög
hagstætt að versla. Þar sem
eyjarnar liggja skammt undan
strönd Frakklands er veðurfar
mjög gott. Baðstrendurnar
hafa einmitt heillað marga sem
þangað hafa farið.
Jerseybúar eru, eins og ibúar
Guernsey, af keltnesku kyni en
hafa þó nokkuð blandast
Frökkum og Englendingum.
Báðar þjóðirnar hafa sóst til
valda á eyjunum. Síðasta her-
nám eyjanna var í síðari heims-
Bæði á Jersey og Guernsey er
mikið lagt upp úr góðum mat. Sæl-
kerar hafa því eitthvað til að hlakka
til þegar haldið er til eyjanna.
styrjöldinni og hafa þær verið
sjálfstæðar síðan. Eyjaskeggjar
tala fleiri en eitt tungumál en
aðalmálið er enska.
Jersey er á sömu breiddar-
gráðu og París en loftslagið er
þó mildara og jafnara. Eyjan er
láglend og frjósöm. Jerseybúar
rækta aðallega holdanaut og
kartöflur. Einnig mun
sjómennska vera i hávegum
höfð. Á Jersey er mikið kapp
lagt á góðan mat og hefur eyjan
því oft verið kennd við sælkera.
Golfíþróttin nýtur mikilla vin-
sælda. Golfvellir á Jersey eru
þrír og allir mjög góðir. |
Skemmtanalífið er fjölbreytt.
Nefna má óperu, kvikmynda- |
hús, dansstaði, ekta breska
pöbba og diskótek. Hægt er að
fara í margvislegar skoðunar-
ferðir, bæði milli eyja og til
meginlandsins.
Guernsey er ekki ólík Jersey.
Hún hefur sótt mikið á
undanfarin ár hvað varðar
36 Vikan 14. tbl.