Vikan


Vikan - 04.04.1985, Síða 9

Vikan - 04.04.1985, Síða 9
G ORÐ skreytingu á morgun- verðarborðið? Morgunverðarborð á páskum Garn: Mayflower Cotton, nr. 8,100 g. Heklunál: Nr. 8. ATH.: Heklið úr tvöföldu garni. Borðmotta: Fitjið upp 16 1. og heklið fjórar umf. fram og til baka, takið aftan í lykkjuna. Nú er heklað í hring og aukið um 2 1. á hornum þannig aö mottan veröi sporöskjulaga. Haldið áfram að hekla í hringi og auka út tvær og tvær 1. þar til 16 umf. eru komnar. Þá eru 2 umf. heklaðar fram og til baka, fariö alltaf aftan í lykkjuna. Dragiö bandið í gegnum síðustu lykkjuna og klippið. Blómin: Fitjiö upp 3 1. og heklið ofan í fyrstu 1. Heklið síðan lausa pinna í gegnum lykkjuna 7 sinnum, saumið saman og saumiö á mottuna. Minni blómin, sem eru inni í þeim stærri, eru hekluö úr tvöföldu garninu og stuðlarnir eru fimm. Fitjiö síðan upp 6—8 1. meö grænu garni og heklið eina umf. til baka. Þaö eru laufblöðin. Saumiö þetta allt niöur í mottuna. Eggjakarfan: Hún er hekluð úr tvöföldu garninu. Fitjið upp 8 1. og heklið 2 umf. fram og til baka. Síðan er heklað í hring, 2. umf., og aukiö um 21. á hornum þannig að karfan veröi hringlaga. Eftir þá umf. er ekki aukið meira við lykkjurnar. Heklið 4 umf. í hring, síðan fram og til baka eins og á mottunni. Handfang körfunnar: Fitjiö upp 121. Heklið fasta pinna í næstu umf. Saumið handfangið fast a hliðar körfunnar. Munnþurrka: Munnþurrkan er prjónuð á prjóna nr. 3 1/2. Prjónaö er tvöfalt perluprjón, þ.e. 2 sl. 1., 2 br. 1., 2 umf., og síðan 2 umf. þar sem sléttar 1. eru látnar stangast á við br. 1. úrfyrri umf. Fitjiö upp 40 1. og prjónið perluprjón, 5—6 umf. Fellið allar 1. af. Heklið síðan fasta pinna allan hringinn, takiö ofan í hverja 1. á hliðum en aðra hverja þar sem fitjað var upp og fellt af. Heklið síöan takka: Fitjið upp 3. 1., síðan er 1 1. hekluð í gegnum öftustu 1. (þá eru 21. á nálinni). Þá er 11. hekluö í gegnum þær báðar þannig að einn takki myndast. Endurtekiö í kringum alla munn- þurrkuna. 14. tbl, Vikan 9 Hönnun: Dóra Sigfúsdóttir Ljósm.: RagnarTh. Aukahlutir: Úr Gráfeldi, Bankastræti

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.