Vikan


Vikan - 04.04.1985, Qupperneq 22

Vikan - 04.04.1985, Qupperneq 22
Einkaspá fyrir hvern dag vikunnar: Hvað segja stjörnurnar um afmælisbarnið? Hver er persónuleiki þeirra sem afmæli eiga í þessari viku? Hvar ættu þeir helst að hasla sér völl í atvinnulífinu? Hvernig lítur út 1 ástamálum þeirra? Hvernig erjieilsufari þeirra háttað? Við lítum á það helsta sem stjjörnurnar hafa að segja um þá sem eiga afmæli 4. — 10. apríl. * * * * 4. apríl: Sá sem fæddur er í dag hefur skapandi gáfur en jafnframt er hann ósveigjanlegur og tillitslaus þegar um þaö er aö ræða aö koma sínu fram. Honum lætur illa að fylgja eftir verkum sem farin eru að renna átakalítið heldur þarf sí- fellt að vera að hrinda einhverju nýju af stokkunum og berjast viö örðugleika. A því sviði er þaö hon- um heldur til trafala að honum er ósýnt um að fara meö lipurö, held- ur veöur áfram af óþolinmæöi. Eins og sést af þessu er áríðandi fyrir afmælisbarn dagsins að komast í starf þar sem þetta frum- herjaeðli fær að njóta sín en jafn- framt ber því að varast störf þar sem nauðsynlegt er að fara fram meö háttvísi og jafnvel vissri kænsku. Afmælisbarn dagsins á vel heima í fararbroddi í flokka- pólitík en óvíst er aö það geti að sama skapi orðið farsæll landsfaö- ir. Vinsælt verður afmælisbarnið sennilega seint en þvi minna óvin- sælt sem það vinnur meira sjálf- stætt. Fjárhagurinn veröur lík- lega dálítiö í öldum en almennt heldur góður. Á sviði ástamála veltur á ýmsu en sjaldan tekst að mynda lang- varandi, fullnægjandi sambönd því afmælisbarniö er gjarnan búið aö styggja mótpartinn frá sér áður en kemur til þeirrar þróunar. Þó eru þau afmælisbörn til sem bera gæfu til að gera sér grein fyr- ir vanköntum sínum og halda þeim innan bærilegra takmarka og mun þá farnast betur á ástar- sviðinu sem og öðrum sviðum. Heilsufar afmælisbarna dagsins verður eins og best veröur á kosið að því tilskildu að þeim takist aö stýra sér hjá slysum. Hins vegar leiöir kappsemin til þess að líkur á slysum eru verulegar og ólíklegt að þau verði öll smávægileg. Happatölur eru 4 og 9. * * * * * 5. apríl: * * + + + Afmælisbarn dagsins er fyrst og fremst vinnuhestur en á stundum erfitt með aö stöðvast við ákveðna þætti og þarf því oft aö skipta um grundvöli. Það er viðkunnanlegt í viökynningu og samstarfi og hefur ljómandi góða kímnigáfu, má þó vara sig á að veröa ekki meinlegt. Það hefur ríka þörf fyrir aö stjórna og ráða og gengur vel á því sviði en hefur litla þolinmæöi í garð þeirra sem ekki hafa nægi- lega mikinn starfsvilja og starfs- úthald. Að líkum lætur að þetta fólk nýt- ur sín best í hvers konar stjórn- unarhlutverkum. Þó fylgir sú krafa aö störfum þessum fylgi þróun og sköpun því eftirlits- og löggæslustörf eru fólki þessu lítt að skapi. Það er ennfremur full- kærulaust til þess að því henti þess háttar stöðluö verkefni. Stjórn- málastörf eru kjörsviö afmælis- barna dagsins, ekki síst sá hluti þeirra sem snýr aö flokkspóli- tískri hugmyndasmíö og stefnu- sköpun. A hinn bóginn hentar þessu fólki ennfremur ágætlega að reka sín eigin fyrirtæki. Samskiptin við hitt kynið geta oröiö áfallalaus og góð en alveg eins má búast viö að þar velti á ýmsu. Hitt kyniö laöast drjúgt aö afmælisbarninu og getur sú ásókn leitt afmælisbarniö út í ógöngur. Þau afmælisbarnanna sem hafa lært aö stilla lífsmáta sínum nokk- urn veginn í hóf fara best út úr ástamálunum sem og flestu öðru en mega þó búast við að því meira gefi á bátinn sem sigldur er hvass- ari beitivindur. Hvaö heilsufarið áhrærir má telja þaö viðunandi á flestan máta en hætt er viö að nokkurrar streitu gæti, að minnsta kosti um miðjan aldur, og kynni hún að koma fram í óhraustum maga. Einnig skyldu afmælisbörn dagsins vera sér- staklega á varðbergi gegn slysum, sem almennt verða þó frekar af meinlausari geröinni. Happatölur eru 5 og 9. ¥ * * * * 6. apríl: * * * * * Afmælisbarn dagsins er dult í skapi en um leið einstaklingur sem tekiö er eftir. Það er stjórn- samt eins og hrútum er títt og stjórnar með knöppum en greini- legum hætti. Það er ekki mikið fyrir að trana sér fram en lætur ekki ganga yfir sig. Þaö hefur ánægju af listum og nokkra skap- andi gáfu á þeim sviðum sjálft, einkum myndlist og bókmenntum og jafnvel tónlist. Ennfremur er það trúhneigt í besta lagi. Fólk með þessa skapgerö getur orðið nýtir starfsmenn á fjölda- mörgum sviðum, ekki síst þar sem stjórnunarhæfileiki fær að blómstra. Prestskapur og skyld störf eru því í sjálfu sér mjög að skapi en hætt er viö að því verði þar ekki mikiö ágengt þar sem það er í sjálfu sér mótfalliö því að láta á sér bera meö einum eða öör- um hætti. Starf þess nýtist kannski hvað best ef það getur haslað sér völl á sviði lista eða verið í forsvari fyrir einhvers kon- ar vísindastarfsemi sem krefst nákvæmrar stjórnunar og ögunar og má fara hljótt. Ekki veröur meö sanni sagt aö einstaklingar af hinu kyninu hnappist um afmælisbarn dagsins og veröi honum aö fótakefli. Þó er afmælisbarniö ekki geölaust á þessu sviöi og má búast viö því að ástin komi snögglega inn í líf þess — nánast eins og kólfi væri skotiö eða ör af streng svo gripið sé til líkinga. Verði þetta skot gagn- kvæmt má búast við eldheitu sam- bandi en þó getur svo farið að stjórnsemi afmælisbarnsins valdi nokkrum hnökrum í sambúöinni og spilli henni jafnvel alveg ef smámunasemin keyrir um þver- bak. Margs konar kvillar bregöa skugga á heilsufarið án þess aö nokkur þeirra sé í sjálfu sér alvar- legur en afmælisbarn dagsins lep- ur upp flestar farandpestir. Það ætti líka að vera vel á verði gagn- vart streitu. Happatölur eru6og9. 22 VíKan 14. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.