Vikan - 04.04.1985, Page 47
Draumar
Naut og stríð
Kærí draumráðandi.
Mig langar til að biðja
þig að ráða fyrir mig tvo
drauma sem mig dreymdi
fyrir stuttu. Sá fyrri var
svona: Mér fannst ég vera
uppi í sveit þar sem ég var í
sumar. Eg var úti við fjós
og var eitthvað að gera þar.
Þá sé ég naut standa hjá
girðingu þarna nálægt og
strákinn (K) sem var þarna
í sveit Itka. Segist K alveg
geta látið nautið koma og
stanga mig. Eg sagðist ekki
trúa honum og þá lét hann
nautið fara að elta mig og
nautið elti mig alveg að fjós-
dyrunum og allt í einu var
einhver kominn tii mín. Ég
sá ekki hver það var og ég
var ekki nógu fljót að opna
dyrnar svo nautið náði að
stanga okkur og það var
mjög sárt því nautið var
með mjög stór horn. Svo
opnuðum við dyrnar, hlup-
um inn og lokuðum en
nautið braut hurðina og
elti okkur út og inn um
sömu dyrnar mörgum sinn-
um. Stundum var einhver
spýta fyrir mér en einhvern
veginn komst ég. Allt í
einu vorum við búin að
loka nautið inni í einhverju
herbergi og búin að rota
það. Svo fór ég bara að
mjólka kýrnar og þá komu
konan (H) sem á heima
þarna og tvær dætur henn-
ur (B og S) og sögðu okkur
að setja nautið út. Þá opn-
aði ég dyrnar og K vakti
nautið og rak það út.
Hinn draumurinn var
svona: Mér fannst ég vera í
vinnunni hjápabba og eitt-
hvað að gera þar. Þá kemur
fullt af flugvélum fljúg-
andi yfir borgina og kasta
niður smásprengjum en
bara nokkrar þeirrar
sprungu. Eg sagði við
pabba að ég vildi ekki
deyja því ég væri svo ung
ennþá og ætti allt lífið eftir
og þá sagði pabbi að
mamma og litlu systkinin
mín (J og H) væru á S og
myndu þau ekki lenda í
stríði. Þá sagði ég að við
skyldum bara fara vestur,
þangað sem ég var í sveit í
fyrra (svo við lentum ekki
í stríði). Og þá féll ein
sprengja rétt við hliðina á
mér en hún sprakk ekki. Eg .
sá að hún var innpökkuð í
plast eins og pylsa. Við tök-
um plastið utan af henni.
Það var frá einhverju fyrír-
tæki eða búð. Svo vorum
við allt í einu komin vestur
og allt var gefbreytt og við
vorum að keyra regnhlífar-
kerru. Þá sá ég naut fyrir
innan girðingu hjá vegin-
um. Svo byrjar nautið að
elta mig fram og til baka
yfir girðinguna en svo var
eins og einhver stoppaði
nautið því það hættir að
elta mig og horfir bara á
mig. Svo vorum við pabbi
að labba niður stiga (sem
var þar sem vegur er í raun-
inni núna) og pabbi hélt á
regnhlífarkerrunni en svo
fórum við upp aftur og
mættum þá manni á Land
Rover og sögðum að hann
yrði að fara út á hinn veg-
inn. Þá var allt í einu mal-
bikaður hliðarvegur út frá
þessum vegi.
Eg hef aldrei munað
neina drauma svona vel.
Með fyrirfram þökk fyrir
ráðningu.
Guðrún Þ.
Fyrri draumurinn bendir
til þess að þú lendir í harð-
vítugri baráttu, sennilega í
ástamálum en ef ekki í ást-
um þá í einhverjum öðrum
tilfinninga- eða fjölskyldu-
málum.
Það gengur á ýmsu og
því er ekki að leyna að
þetta gæti að mörgu leyti
orðið hörð barátta af þinni
hálfu en þú ættir með
góðri hjálp náinna vina að
hafa betur, vinna sigur og
jafnvel á einhvern þann
hátt að þú þættir fullsæmd
af og þættir jafnvel hafa
staðið að málum þannig að
þú hækkir nokkuð í áliti
hjá vinum þínum og þeim
sem eru þér kærir. Þetta er
flókið mál en aðalbaráttan
stendur milli þín og ein-
hvers annars.
Seinni draumurinn er að
mörgu leyti staðfesting eða
endurtekning á hinum en
þó eru öll tákn þar sterkari
og draumráðandi er ekki
viss um að um sama atburð
sé að ræða þó málsatvik séu
svipuð.
Það er eins og eitthvað
ógni þér, fjölskyldunni eða
því lífi sem þið lifið, eitt-
hvað utanaðkomandi, en
sem betur fer reynist þessi
ógn vera hálfgerð loftbóla,
stór orð og mikill kraftur en
ekkert þegar til á að taka.
Svo þú getur verið áhyggju-
laus. Það sem umfram
þetta atriði er virðist vera
samhljóma fyrri draumn-
um, annaðhvort henda þig
tvö svona baráttuatvik eða
um sama atvik er að ræða.
Draumanöfnin (á systkin-
unum) benda til baráttu
góðs og ills, sem fjarlægs
undirtóns.
14. tbl. Vikan 47