Vikan


Vikan - 04.04.1985, Síða 53

Vikan - 04.04.1985, Síða 53
einni ástæðu — hún átti bróður í Le Mornay. Samt hafði Heiðna komist að þeirri niður- stöðu fyrir hálftíma að ef Nigel væri eitthvað svipaður þessari nautheimsku systur sinni væri ekki mikill fengur í að kynnast honum. „Pabbi segir að það hafí breytt Nigel algjörlega, hann er búinn að fá alveg ótrúleg sambönd.” Francesca þusaði áfram: „Pabbi segir að hann líti á skólagjöldin sem góða fjárfestingu vegna þess að hann vill að Nigel fái alþjóðlegt viðhorf og í Le Mornay hittir maður bara fólk sem á peninga og er eitthvað. Allir olíukrakk- arnir fara þangað. Hann lítur ekki út eins og skóli. Hann er í gömlum kastala við Leman- vatn. ’ ’ Hún beit í rjómaköku. „Þeir geta farið til Genf eða Lausanne þegar þeir eiga frí á kvöldin og þeir mega vera í burtu yfir helgar ef foreldrarnir gefa leyfí til þess.” Francesca fékk sér aðra tertusneið. „Það er auðvitað mikið að gera hjá þeim en þeir eru ekki lokaðir inni eins og við í þHirondelle. Og auðvitað mega strákarnir fara á böllin á laugardagskvöld- um. Á hverju laugardagskvöldi á veturna eru haldin opinber böll í einhverju hótelanna, þó Nigel fari bara á þessi fínu eins og á Imperial eða Palace. ’ ’ „Við höfum aldrei farið á ball,” sagði Kata. „Satt að segja kunnum við ekki að dansa.” „Ekki nema polka og Há- landahopp — við lærðum það í skólanum,” bætti Heiðna við. Strákar, böll, glæsihótel, það var allt ofboðslega spennandi °g ógnvekjandi. En hvað Fran- cesca var heppin að eiga eldri bróður, hugsuðu þærmeð sér. „Hvenær koma Le Mornay strákarnir hingað? ” „Þeir eru í Gstaad í þrjá uaánuði, frá janúar fram í mars. kfamma segir að þetta sé allt Svo vel skipulagt. Eftir jólafrí efu ferðatöskurnar hans bara Sendar til Gstaad í staðinn fyrir Roue. ’ ’ „Það minnir mig á,” sagði Rfeiðna og var fljót að ljúga, „að ráðskonan sagði mér að Fimmtíu ára reynsla og 70% markaðshlutfall í USA segir meira en mörg orð um Gerber barnamatinn. Venjuleg fæða er of bragðmikil eða skortir næringarefni, sem ungbörn þurfa á að halda til að dafna og þroskast eðlilega. Eftir áratuga rannsóknir færustu sérfræðinga hefur Gerber tekist að framleiða, úr bestu hráefnum, mikið úrval af auðmeltanlegum og bragðgóðum barna- mat, með réttum næringarefnahlutföllum. Gerber gæðanna vegna það geta 30 milljón mæður staðfest. Einkaumboð gMWS&VIÓTZCLw sími 82700 Auglýsingastofa Gunnars

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.