Vikan - 23.05.1985, Blaðsíða 5
A
\ einni kvöldstund hjá Leikfélagi Akureyrar líöa fjörutíu og átta
æviár eins af gimsteinum mannsorpsins. Edith Piaf, sem fæddist undir
Ijósastaur, ólst upp í hóruhúsi í umgengni við mannlífsdreggjarnar en
varð ein skærasta listastjarna þessarar aldar, er þar endurfædd, lifir og
deyr í eftirminnilegri leiksýningu. Tíu leikarar túlka þar þrjátíu og sjö
persónur. Stærstu hlutverkin eru í höndum Eddu Þórarinsdóttur — Edith
Piaf — og Sunnu Borg — sem leikur nánustu vinkonu hennar og hald-
reipi gegnum tíðina, portkonuna Toine.
VIKAN bregður upp myndum af þessu fólki eins og það kemur fram í
fyrsta gervi kvöldsins, í þann mund sem Edith unga er að syngja sig af
stað til frægðar og átaka, sjálfala barn umhverfisins.
Þetta er ekki leiklistargagnrýni, ekki einu sinni sviðsmyndir úr leikritinu
sjálfu, aðeins myndir af nokkrum persónum þess ásamt því sem þær
gætu verið að segja — ef þær tala þá nokkuð. Við sjáum Edith Piaf, föður
hennar, kráreigandann sem ,,fann” hana á götunni, glasavörðinn á
knæpunni, Toine aldavinkonu hennar og skækjurnar á götunni, og loks
lögregluþjónana sem eru eins og framandi armar allt annarrar tilveru —
Pigalle við upphaf kreppunnar.
Jnja vinur, hvafl finnst þér?
Hún yfirgnœfir afl minnsta kosti diskaglamrifl. .
Hún haitir Edith — Edith Gassion.
Portkonur Parisar
hrœrðist i.
Barnsburð ber afl tilkynna samstundis. Pafl
stendur i lögunum.
jarðvegs sem söngfuglinn Piaf spratt úr og
21. tbl. Vikan 5