Vikan - 23.05.1985, Page 16
Hinn ofurmyndarlegi Art Malik
Er nokkur búinn aö gleyma Hari
Kumar, Indverjanum myndar-
lega Úr Dýrasta djásninu, sjón-
varpsþáttunum sem sýndir voru í
vetur? Tæplega nokkur sem á
annaö borð fylgdist meö þáttun-
um, í þaö minnsta ekki kvenfólkið
því Hari Kumar var eftirminni-
lega myndarlegur maður og
persóna sem átti samúö áhorf-
enda.
En Hari Kumar heitir vitanlega
ekki Hari Kumar í raun og veru þó
svo aö honum hafi gengið illa að
gera fólki það ljóst, svo sterkt upp-
liföi þaö hann í rullunni. Leikarinn
heitir Art Malik og er 32 ára Breti
eins og Hari Kumar, fæddur í Pak-
istan og flutti meö foreldrum sín-
um til Englands þegar hann var
þriggja ára. Dýrasta djásnið var
fyrsta meiriháttar hlutverkiö
hans en síðan hefur hann leikið
lögf ræðinginn Mahmood Ali í Ferð-
inni til Indlands og í mynd sem
heitir The Far Pavillions og er gerö
eftir frægri rómantískri ástar-
sögu. Um þessar mundir leikur
Art Malik á sviði í Manchester í
leikgerö Great Expectations
(Glæstar vonir) eftir Dickens, og
það ber til tíðinda að hann leikur
ekki Indverja heldur mjög svv.
breskan Breta, Herbert Pocket.
Vegna þess að hann er nokkuð
dökkur á hörund hefur honum
gengið heldur illa að fá aö leika
hvíta menn. Hann segir að þama
ríki tvískinnungur því það sé ekk-
ert talið athugavert við það þó
hvítir menn eins og Alec Guinness
og Lawrence Olivier leiki hör-
undsdökka menn, en sé þessu á
hinn bóginn víxlað þyki það frá-
leitt. En nú er þetta örlítið að
breytast til batnaðar fyrir hör-
undsdökka leikara því sannast
sagna em góð hlutverk sem skrif-
uð em fyrir þá haria f átíð.
Hlutverk Hari Kumar í Dýrasta
djásninu olli straumhvörfum í lífi
Arts Malik. Þetta var stóra tæki-
færið hans í lífinu og nú er svo
komið að faðir hans, sem er virtur
augnlæknir, er hættur að spyrja
hann hvenær hann ætli að fara að
fá sér vinnu! Systkini Arts Malik,
fimm að tölu, fóm öll í langskóla-
nám og það var til þess ætlast að
hann færi þá leið líka. En hann var
áhugalaus og latur í skóla og náöi
ekki tilskildum einkunnum til þess
að komast í arkitektúr, en að því
stefndi hann í orði. Til þess að
gera eitthvað fór hann í viðskipta-
fræðinám og gekk í leiklistarfélag
skólans. Það varð til þess að hann
hætti námi og þreytti inntökupróf í
fjölmarga leildistarskóla. Að lok-
um var hann tekinn inn í Guildhall
skólann í London. Eftir að hann út-
skrifaðist lék hann meðal annars
hjá Royal Shakespeare Company
og Old Vic vegna þess að venju-
lega féllu til einhver hlutverk þar
sem þurfti dökkan mann. Og fyrst
hann gat leikið og var á annað
borð í húsinu fékk hann smáhlut-
verk í hinum og þessum leikritum.
Með því gat leikhúsið stært sig af
frjálslyndri stefnu í þessum efn-
um en í rauninni var þetta aðeins
til að sýnast.
Árið 1978 benti vinur Maliks
honum á að lesa The Raj Quartet
eftir Paul Scott (sem sjónvarps-
þættimir em gerðir eftir). Honum
þótti bókin torveld aflestrar en
þrælaðist í gegnum hana sér til
mikillar ánægju. Vinurinn, sem
benti honum á bókina, sagði enn-
fremur við hann að þegar til þess
kæmi að bókin yrði færð í leikbún-
ing yrði hann að fá að reyna sig
sem Hari Kumar.
Þegar að því kom að Granada
sjónvarpsstöðin fór að huga að
kvikmyndun þáttanna hafði leik-
stjórinn samband viö hann og vildi
raeða málin. En það var ekki fyrr
en mörgum mánuðum síðar að
hann var aftur kallaöur til, i þetta
sinn ásamt Susan Woolridge (sem
lék Daphne Manners) og þar með
var hlutverkaskipan ákveðin.
Hann var í tíu vikur á Indlandi,
en ein áhrifamesta senan er þó
tekin í kjallara leikhúss í Eng-
landi. Það er þegar Ronald Merr-
ick er að pynta Hari Kumar. I því
atriði þurfti Art Malik að koma
fram nakinn. Atriðið var ekki tek-
ið upp fyrr en undir lokin þegar
allir leikaramir höfðu kynnst vel.
Eins og hann segir sjálfur þá hafði
hann dottið í’ða með öllum við-
stöddum og því var þetta ekki eins
hræðilegt og hann hafði átt von á.
Art Malik er giftur og á tvær
dætur. Tilboðin streyma nú að
honum og framtíðin virðist blasa
björt við honum. „Mig langar til
þess að hvíla mig á aö leika Ind-
ver ja um hríð, þó ekki væri til ann-
ars en sannfæra fólk um að það er
líf eftir Hari Kumar!” segir Art
Malik.
16 Vikan 21. tbl.