Vikan - 23.05.1985, Page 20
Töfraráðin
eru
bara þvæla!
Það dugar enginn
megrunarkúr ,,til lengdar"
Texti: Sigurður G. Tómasson Myndir: Ragnar Th. Sigurðsson
Eins og lesendum Vikunn-
ar er kunnugt hefur Óttar
Guðmundsson, yfirlæknir í
Keflavík, séð um nokkra
þætti í Eldhúsi Vikunnar að
undanförnu. Það var ekki til-
viljun að við fengum Óttar
til þessa starfs. í fyrsta lagi
er hann áhugamaður um
mat og matartilbúning og í
öðru lagi snertir doktorsrit-
gerð hans, sem fjallar um
áhrif salts á háan blóðþrýst-
ing, afar mikið mat og
neyslu.
En hvernig byrjaði þetta
allt saman?
„Ætli ég hafi ekki bara verið
svangur Islendingur í útlöndum.
Ég byrjaði að elda mat á fullum
dampi þegar ég var í Svíþjóð um
1980. Konan sem ég var giftur þá
eldaði aldrei mat svo einhver varð
að gera þetta. Nú, ég hafði líka
verið í pólitík heima á Islandi en i
Svíþjóð er engin pólitík, bara fjór-
ir flokkar sem eru allir eins. Eitt-
hvað varð maður að gera. Nú, nú,
ef maður skýrir þetta sálf ræðilega
þá er svolítil sjálfsupphafning
fólgin í því þegar karlmaður fer að
elda mat á heimilinu. Hann verður
miðpunkturinn. Eiginlega verður
hann aftur duglegi strákurinn,
allir hrósa honum og svoleiðis.
Stundum endar þetta jafnvel með
því að hann kemst í blöðin, verður
sælkeri, vínsmakkari og svo fram-
vegis.”
Eftir þennan sálfræðilega inn-
gang vindum við okkar kvæði í
kross. Blaðamaður var haldinn
gamalli matarást í garð eiginkonu
Ottars, Ásu Olafsdóttur myndvef-
ara, og því spurðum við næst um
hana:
— Eldar Ása akki lengur?
Jú, jú, hún er öndvegis kokkur
líka. Það er gott samkomulag um
þetta eins og annað hér á heimil-
inu.”
— Ertu snyrtilegur I eldhúsi?
„Nei, guðisélof.”
Og með það undum við okkur
yfir í saltið.
Núna heitir þetta „nýja Ifnan",
„franska linan" eða „ftalska linan".
Efla „rauflvfnsleginn smokkfiskur
flamberaður I konfaki".
Allt, allt of mikið saltl
— Söltum við matinn okkar of
mikið, Óttar?
„Það er mála sannast að Islend-
ingar borða allt, allt of mikiö salt.
Meðalneyslan er sennilega um 12
g á mann á dag en við þurfum llk-
lega 1—2 grömm og fáum það
magn allt í mat án þess að salta
sérstaklega. Fólk ber því við að
maturinn bragðist ekki vel nema
salta hann. Þetta er bara bull.
Fólk er bara búið að venja sig á
þetta. Það eru til ótal aðrar bragð-
tegundir eða krydd sem fólk getur
notað tU þess að kitla bragðlauk-
ana. Hér nota allir of mikið salt,
ekki síst á veitingahúsunum. Mér
finnst þeir stundum salta tryll-
ingslega þar.”
— Hvemig em tengsl selts og há-
þrýstings?
„Það veit nú enginn fyrir víst
hvemig þeim tengslum er háttað.
En sýnt hefur verið fram á að
neysla á matarsalti, natríumklór-
íði, hækkar blóðþrýsting. Þeir
ættu þess vegna að gæta varúðar í
saltneyslu sem hafa háan blóð-
þrýsting fyrir og einnig þeir sem
hafa eðlilegan blóðþrýsting sjálfir
en eiga eða hafa átt skyldmenni
með háan blóðþrýsting. ”
Flamberaðir sveitamenn
— En hvafl finnst þér um matinn
sam við borflum?
„Mér finnst Islendingar vera
20 Víkan 21. tbl.