Vikan - 15.12.1988, Side 3
ÁHUGAVERT LESEFNIFYRIRJÓLIN
FRÁ REYKHOLTIHF.
Bókaútgáfan Reykholt býður lesendum þrjár nýjar
bækur fýrir þessi jól.
Auk þess endurútgefum við á sérstöku tilboði þá íjórðu.
SÚ FORVITNILEGASTA
Við geíum út bók eftir einn umdeildasta guðsmann
íslands, sr. Árelius Níelsson. Bók hans heitir HORFT
UM ÖXL AF HÁLOGALANDSHÆÐ og hefur að geyma
endurminningar hans. í flestra augum er sr. Árelíus
persónugervingur guðlræðinnar sem flestir setja í
samband við sína eigin barnatrú.
SU FRUMLEGASTA
Þröstur J. Karlsson er ungur höfundur sem við höíum
sérstaka ánægju af að kynna bókaþjóðinni. Hann hefur
skrifað skáldsöguna SKUGGANN, bók sem okkur finnst
einkennast af takmarkalausu hugmyndaflugi. í henni
koma fyrir allir helstu örlagavaldar mannkyns.
SU ÞJOÐLEGASTA
Við erum upp með okkur af að fá að gefa
út nýjustu bók Indriða G. Þorsteins-
sonar, en hún heitir því þjóðlega nafni
HÚÐIR SVIGNASKARÐS. Þetta er
leikrit sem fjallar um Snorra Sturluson.
Einar Hákonarson myndlistarmaður
myndskreytti bókina.
REYKHOLT
Maðurinn og skáldið
STEINN STEINARR
á afmælistilboði
Nú í október hefði höfúðskáld ís-
lenskrar nútímaljóðlistar, Steinn
Steinarr, orðið 80 ára ef hann hefði
lifað. Skáldbróðir Steins, Sigfús
Daðason, hefúr skrifað um hann
bók, sem Reykholt hf. hefúr nú
dreift sérstaklega í tilefni þessara
tímamóta og boðið unnendum
Steins til kaups á sérstöku afsláttar-
verði. í bókinni er fjöldi mynda og
ýmis áður óbirt verk Steins.
AÐ SIGRA HEIMINN
Að sigra heiminn er eins og að spila á spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
(Og allt með glöðu geði
er gjama sett að veði).
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er neMega vitlaust gefið.
Steinn Steinarr
SIGFÚS DAÐASON
SETTl SAMAN
MADURINN OG SKALDID
STEINN STEINARR
80 v
AR
l AFMÆLIS-
JILBOÐ
27. TBL 1988 VIKAN 3