Vikan - 15.12.1988, Side 8
SITT UTIÐ AF HVERIU
Þetta er Ólafur
Isíðasta tölublaði Vikunn-
ar var viðtal við frétta-
menn Stjörnunnar. Var
með því mynd sem sýndi
þrjá af fjórum fféttamönnum
stöðvarinnar, en á myndina
vantaði Ólaf Geirsson. Okkur
fannst rétt að bæta úr því með
þessari glænýju mynd af Ólafl.
Þannig að nú hafið þið, lesend-
ur góðir, séð andlitið á bak við
röddina....
Hver er Elín?
Fjölmargir hafa spurst
fyrir um stúlkuna sem
prýddi forsíðu síðasta
tölublaðs Vikunnar.
Mörgum fannst þeir kannast
við andlitið, en komu því ekki
fyrir sig, hvar þeir höfðu séð
það áður.
Því er til að svara, að stúlkan
heitir Elín Ólafsdóttir, hún er
að norðan, en stundar um
þessar mundir nám við Versl-
unarskólann. Ekki er ólíklegt
að margir þeirra sem töldu sig
kannast við stúlkuna hafi séð
hana á sviði Broadway þar sem
hún söng í Gæjum og píum
nokkrar vikur. Það var einmitt
þar sem ljósmyndarinn okkar
hann Magnús Hjörleifsson
veitti henni athygfi og fékk
hana til að sitja fyrir á mynd
fyrir Vikuna. Er þetta í fýrsta
skipti sem Elín bregður sér í
hlutverk ljósmyndafýrirsætu
fýrir tímarit, og verður ekki
annað sagt en að henni hafl far-
ist það hlutverk vel úr hendi
engu síður en hlutverkið í
söngleiknum.
Nú og svo má geta þess enn-
fremur hér úr því við erum að
fjalla um þessa myndatöku, að
hárgreiðsluna annaðist Ari
Alexander á hárgreiðslustof-
unni Hár og snyrting.
VIKAN OG HÚS & HÍBÝLI:
Tvö á toppnum
\"T' ikan og Hús og hí-
f býli, tímarit SAM-út-
gáfunnar, eru í topp-
sætum nýafstaðinnar
lesendakönnunar, sem Félags-
vísindastofhun Háskólans vann
fýrir Verslunarráð fslands og
kynnt hefur verið í fjölmiðl-
um. Hús og híbýli er enn sem
fýrr annað mest lesna tímarit
landsins og Vikan situr í þriðja
sæti.
Meðfylgjandi súlurit sýnir
hlutfall þeirra sem hafa lesið
eða skoðað hvert tímarit síð-
astliðna tólf mánuði. Kemur
þar ffam, að 66 prósent að-
spurðra höfðu lesið eða skoð-
að Hús og híbýli, en 60 prós-
ent Vikuna. í báðum tilfellum
reynist kvenfólk vera áhuga-
samari blaðalesendur. Þannig
sögðust 60 prósent karla hafa
litið í Hús og híbýli á meðan
72 prósent kvenna sögðust
hafa flett blaðinu. Vikuna
höfðu 53 prósent karla litið í,
en 65 prósent kvenna. í báð-
um tilfellum er þessum tíma-
ritum SAM-útgáfunnar góður
gaumur gefinn af karlþjóðinni.
Bæði tímaritin hafa bætt við
sig frá því Iesendakönnun var
framkvæmd á síðasta ári og
hefúr hvorugt þeirra áður
fengið jafn góða útkomu úr
lesendakönnun þó bæði hafl
þau verið í toppsætum í gegn-
um árin. Almennt virðist tíma-
ritalestur raunar hafa aukist í
landinu samfara stóraukinni
útgáfú öfúgt við það sem búast
hefði mátt við. Og það þó til
hafi komið myndbandaævin-
týrin á síðari árum og síðan
aukið ffamboð útvarps- og
sjónvarpsefnis. □
Forskot á jólasœluna
LJÓSM.: RAGNAR TH. SIGURÐSSON
P
að er ekki ótrúlegt að
margir þeirra sem
hafa gætt sér á matn-
um af jólahlaðborðinu í
Skrúði, hinum notalega veit-
ingasal á jarðhæð Hótel Sögu,
hafi látið sér detta si svona í
hug, að taka á leigu herbergi á
hótelinu fram til jóla til að eiga
sem styðst að fara í borðið á
meðan það stendur mönnum
til boða. Slíkt er ágæti þessarar
veislu.
Jólahlaðborðið er orðinn ár-
viss þáttur í starfsemi Hótel
Sögu og Gildis. Boðið er upp á
jólaglögg á Mímisbar, glögg
sem er með því ljúffengara
sem útsendari Vikunnar hefúr
bragðað. Uppskriftin er fjöl-
skylduleyndarmál, segir Vil-
helm Westmann ffamkvæmda-
stjóri Gildis, en upplýsti þó að
í það færi valið rauðvín, koníak
og púrtvín og sjö tegundir af
kryddi.
Hlaðborðið í Skrúði er unn-
ið að danskri fyrirmynd, en er
með íslensku ívafi. Á því eru
38 réttir hver öðrum girnilegri
og í eftirrétt er svo hægt að
gæða sér á jólakökuborði þar
sem er að finna ekta Texas-
kökur.