Vikan - 15.12.1988, Síða 11
„Eg lifi ekki
fullkomnu kynlíff*
— segir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur
,Jæja, hvar viltu byrja?“ spyr Jóna
Ingibjörg Jónsdóttir kynfræð-
ingur, þegar við höfum komið
okkur fyrir á skrifstofu hennar á
2. hæð að Laugavegi 178. Hún
hefur varla sleppt orðinu þegar
síminn hringir. Á hinum enda
línunnar er auðheyrilega ein-
hver sem telur sig eiga í vanda.
En, því miður. Blaðamaðurinn
var á undan með sína spum-
ingadembu. Og svo er Jóna Ingi-
björg hætt að veita einstaklings-
viðtöl. „Ég hef svo mikið að gera
að ég anna því ekki að vera með
einstaklingsviðtöl til viðbótar
við allt hitt,“ sagði hún. „Svo taka
þau tíma frá fræðs 1 ustarlinu,
þannig að ég hef bent þeim sem
hringja á Heilsuvemdarstöðina.“
En hver er hún þessi unga kona sem fer
sínar eigin leiðir, útskrifast úr háskóla sem
kynfræðingur og hefur störf heima sem
slíkur, — raunar sá fyrsti sinnar tegundar
hér á landi? Og hvernig stóð á því að hún
lagði stund á þetta fag en ekki eitthvað allt
annað?
„Ég er fædd og uppalin í Reykjavík,"
sagði Jóna Ingibjörg. „Raunar feddist ég á
Eiríksgötunni þar sem ég átti svo strákinn
minn fyrir tveim og hálfu ári síðan.
Ég hef alltaf haft áhuga á þeim leyndar-
dómsfullu þáttum kynlífs, sem hafa al-
mennt ekki verið til umræðu ffarn til
þessa. Svo er ég sporðdreki og það hefur
sjálfsagt stuðlað að því að ég færi í þetta