Vikan - 15.12.1988, Síða 18
VIKAN
FAGNAR
50ÁRA
AFMÆLI
r
l fjóröa og síðasta skipti
fylgir skafmiði Vikunni, tilefni
miðaútgáfunnar er að sjálf-
sögðu hálfrar aldar afmæli Vik-
unnar, en útgefandur ákváðu að
hafa endaskipti á hlutunum. Nú
er það sem sé afmælisbarnið
sem færir velunnurum sínum,
lesendum blaðsins, gjafir. Með-
fylgjandi skafmiði gæti fært þér
einhverja þeirra eittþúsund
gjafa sem sagt er frá hér í opn-
unni. Samtals er verðmæti gjaf-
anna ein og hálf milljón króna.
Undir fletinum, sem skrapa þarf
af gjafakortinu, leynast bókstaf-
ir. Ef þú færð einhverja þeirra
stafaraða sem færa þér afmæl-
isgjöf getur þú umsvifalaust vitj-
að gjafarinnar á skrifstofu Vik-
unnar, sem er í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1 í Reykjavik. - En
fyrst verður þú að færa inn á
gjafakortið, í þar til gerðan reit,
svarið við því hvar Örkin hans
Nóa er falin í blaðinu.
Færi skrapmiðinn þér ekki ör-
bylgjuofn, ilmvatn, bók, hljóm-
plötu eða konfektkassa heldur
stafina A, V og C getur þú póst-
sent kortið til Vikunnar með
nafni og heimilisfangi ásamt
réttu svari við spurningunni um
felustað arkarinnar hans Nóa.
Kortið fer þá í „þottinn“ sem
dregið verður úr á Þorláks-
messu. Sá heppni fær ferð fyrir
tvo að eigin vali með leiguflugi
Útsýnar á næsta ári og er vinn-
ingurinn að verðmæti 100 þús-
und krónur. Einnig fær hann,
svona aukreitis í jólagjöf frá Vik-
unni, ilmvatn, bók, plötu og
konfektkassa.
Þannig lítur Örkin hans Nóa út, en
hún er falin einhvers staðar í Vik-
unni. Felustaðarins verður þú að láta
getið til að skafmiðinn geti fært þér
gjöf eða þátttöku í úrdrætti úr „pott-
inum“.
1 8 VIKAN 27. TBL. 1988
100.000 KR.
FERÐAÚTTEKT
HJA UTSYN
Þeir sem fá bókstafina A, V og C á skrapmiðann geta verið með í „pottinum" þegar d<
ið verður á Þorláksmessu um ferð fyrir tvo með Útsýn á næsta ári. Afmælisgjöf
verðmæti kr. 100.000. Sá heppni getur hugsað með mikilli tilhlökkun til næsta suri
leyfis, því eins og alþjóð veit er úr fjölda spennandi ferða að velja og alls staðar
vandaða gististaði að ræða og besta mögulega aðbúnað. Sá ferðamaður er í traustum höní
sem ferðast með Útsýn.
EGILL, JAK0B OG RAGNHILDUR
- sem saman skipa STRAX - eru að
senda frá sér nýja plötu undir nafninu
„Eftir pólskiptin". Það er mikið úrvalslið
sem aðstoðar þau þrjú á plötunni og út-
koman vafalítið eigulegasta plata ársins.
Meðal vinninga eru 250 eintök af þessari
nýju plötu, sem kostar út úr búð 1.199 kr.
Samanlagt verðmæti hljómplötustaflans
er því kr. 299.750.
Því miður féll niður nafn Egils á skafmið-
anum og er Egill beðinn velvirðingar á
þeim mistökum.
VIKAN GEFUR
1000 LESENDUM
MÆLISGJAFIR