Vikan - 15.12.1988, Side 26
FYRSTU KYNNIN
Urðu að fresta giftingunni
vegna fótboltaleiks hjá KR
„Við sáumst fyrst sumarið 1959. KR-
ingamir höfðu spilað við danskt lið
og um kvöldið buðu þeir Dönunum
með sér á ball í Sjálfstæðishúsinu við
Austurvöll. Eftir ballið var öllum boð-
ið heim til Gísla Halldórssonar, sem
var foresti ÍSÍ í mörg ár. Það var mikið
flör og þegar það stóð sem hæst var
teppinu rúllað upp og ákveðið að
dansa. Bjami vatt sér strax að mér og
bauð mér upp. Hann var ánægður
með sig þetta kvöld og satt best að
segja fannst mér hann bæði montinn
og uppáþrengjandi þarna,“ segir Álf-
heiður Gísladóttir, eiginkona Bjarna
Felixsonar fyrmm knattspymumanns
og íþróttafréttamanns hjá Sjónvarpinu
í áraraðir. Hún hlær dátt þegar hún
lýsir Bjarna þama í partíinu forðum.
Bjarni er fæddur 27. desember 1936 og
Álfheiður 26. september 1941. „Ég er
þessi þrjóska steingeit," segir Bjarni. Og
Álfheiður bætir við: „Ætli þessi merki eigi
ekki vel saman, vogin reynir að halda jafn-
vægi gagnvart þrjóskunni í steingeitinni."
Þau Bjarni og Álfheiður dönsuðu ekki
marga dansa saman í partíinu heima hjá
Gísla Halldórssyni. en það var nóg, neist-
inn hafði kviknað.
„Mér var stúlkan minnisstæð og ég
hugsaði mikið um hana. Þegar ég uppgötv-
aði síðan að hún ynni hjá Kristjáni Ó. Skag-
fjörð eða í næsta húsi við Vélsmiðjuna
Hamar þar sem ég vann, tóku hjólin að
snúast. Loks hafði ég mig í að hringja í
hana og bjóða henni í bíó. Hún þáði boðið.
Það var heljarmikið átak að hringja, enda
vorum við KR-ingarnir ekki á því að bind-
ast á þessum árum. Lífið snerist allt um fót-
bolta.“
Bíókvöldið rann upp. Það var æfing hjá
KR-ingunum á Melavellinum og Bjarni
vildi ekki að það spyrðist út í hópnum að
hann hefði boðið stúlku í bíó eftir æfmgu.
„Ég var ekki beint brattur eftir æfmguna
og lét fara lítið fyrir mér í búningsklefan-
um. Þeir skildu ekkert í því strákarnir hvað
mér lá lítið á, enda var ég að hrista þá af
mér og bíða eftir að þeir færu. Ég gekk síð-
an út. Það var rigning þetta kvöld. Og ég
man að ég beið eftir henni smástund undir
blikkinu á Melavellinum. Síðan kom hún
gangandi og hélt á regnhltf. Við urðum
bæði hálfvandræðaleg, eins og gengur. En
undir regnhlífma fór ég og við leiddumst
niður í bæ. Það var ekki laust við að mér
þætti þetta svolítið djarft en þetta var
mjög rómantískt."
Þau Álfheiður og Bjarni segja að eftir
bíóferðina hafi samband þeirra þróast
smám saman en varla geti það talist að þau
væru byrjuð saman á föstu. En þau fóru
annað veiflð í bíó og út að skemmta sér
saman.
— Hvað var það í fari Bjarna sem þú
tókst fyrst eftir?
„Mér fannst hann áberandi snyrtilegur
og vel klipptúr, með sitt fallega rauða hár.
Hann var jafnframt í stífþressuðum
buxum, en ég komst fljótlega að því að
hann pressaði ekki buxurnar sínar sjálfur.
Nú, og svo var hann auðvitað mjög upp-
tekinn af KR.“
— Þú hefúr ekkert verið búin að fylgjast
með honum í fótboltanum?
„Nei, þrátt fyrir að ég byggi nálægt
Melavellinum fór ég mjög sjaldan á fót-
boltaleiki. Ég hafði til dæmis aldrei séð
hann spila áður en við kynntumst."
Það var svo í maí árið 1962, næstum
þremur árum eftir að þau höfðu kynnst,
sem þau Bjarni og Álfheiður ætluðu að
gifta sig. Staðurinn var ákveðinn og stund-
in líka. Ekkert varð samt úr giftingunni
vegna fótboltaleiks.
„Það var gerð breyting á leikjaröð
mótsins. Á þeim degi sem við ætluðum að
gifta okkur áttum við KR-ingar skyndilega
að leika vestur á ísafirði. Ég ætlaði að sjálf-
sögðu ekki með. En málið vandaðist þegar
bræður mínir Gunnar og Hörður yrðu líka
forfallaðir. Það var of mikið fyrir liðið og
því var giftingunni frestað til 3. júní. Við
giftum okkur á sunnudegi og fórum um
kvöldið í Þjóðleikhúsið og sáum My Fair
Lady.“
Þau Álfheiður og Bjarni eiga fjögur
börn, Gísla Felix, 26 ára, Bjarna Felix, 20
ára, Ágústu, 17 ára, og Aðalbjörgu, 4 ára.
Um fæðingu þeirrar yngstu segir Álf-
heiður: „Það áttu flestir von á því að
styttra væri í að við yrðum afi og amma en
að við kæmum með eitt lítið." Og Bjarni
bætir hlæjandi við: „Ég segi mönnum
gjarnan að ég hafi beðið með meistara-
verkið undir það síðasta."
26 VIKAN 27. TBL.1988