Vikan - 15.12.1988, Side 32
— Segið mér meira frá þessum fyrirœtl-
unum.
„Nei, við viljum helst ekki tala meira um
þær. Frekar að fylgja þeirri gullnu reglu að
ef maður stendur andspænis einhverju
stóru í list eða starfi sé ráðlegast að gaspra
því ekki. Þetta er líka á það viðkvæmu stigi
að best er að segja sem minnst."
„Þetta er líka svipað og með megrunina
blessaða," bætir Ragnhildur við. „Það er
betra að þegja um hana og ffamkvæma
bara. Ekki eyða þrekinu í að fræða aðra á
því hversu mikið maður hafi grennst."
Jakob kinkar kolli, sammála orðum konu
sinnar. Hann bætir svo við:
„Einnig eru uppi á teningunum áætlanir
um að fara á nýjar slóðir. Það er partur af
starfinu að kanna nýja afkima heimsins
hvort heldur er til að spila eða bara skoða
og sækja áhrif. Við hyggjumst sem sagt
halda utan og spila á næsta ári eða því
þarnæsta. Hvert það verður getum við
ekki sagt á þessu stigi en við erum búin að
vinna að málinu lengi og förum nú að sjá
fyrir endann á þeirri undirbúningsvinnu."
- V7ð komum lítillega að því áðan að
þið hafið all ólíkan músíklegan bakgrunn.
Hafið þið haft áhrif hvort á annað?
„Alveg örugglega," svarar Ragnhildur.
,Án þess að Jakob sé orðinn neitt ný-
bylgjusinnaður gefúr hann fleiri þáttum
tónlistarinnar tækifæri en áður.“
Jakob bætir við: „Það sem við fengum út
úr nýbyigjunni er í ölium aðalatriðum ná-
kvæmlega sama hugmynd og starf Stuð-
manna er grundvallað á þegar við byrjum
að spila árið 1969. Þar af leiðandi held ég
því gallharður fram að Stuðmenn séu
fýrsta nýbylgjuhljómsveitin í heiminum.
Hún er fyrsta hljómsveitin í heiminum.
Hún er fýrsta hljómsveitin sem gerir út á
það sem var sniðugt á sjötta áratugnum og
eitthvað ffam á þann sjöunda."
— En, Ragnhildur, hefur þú orðið fyrir
tón/istarlegum áhrifum frá jakobi?
,Já, já. Mér finnst kannski dálítið erfitt
að gera mér grein fyrir því í fljótheitum að
óathuguðu máli en ég hef áreiðanlega
breyst heilmikið síðan við kynntumst."
„Ég hef kennt henni heilmikið um
kontrapunkt," segir hann grafalvarlegur.
„Hann hefur kennt mér heilmikið um
sjö, níu, ellefú hljóminn," segir hún og
skellir upp úr.
„Ég vil bara minna á að Ragga er að
mörgu leyti menntaðri í tónlist en ég, haf-
andi lokið prófi frá Tónlistarskólanum,
sem ég gerði aldrci," segir Jakob. „Ég hef
kannski bætt mér það upp og menntað
mig upp á eigin spýtur í öðrum geirum.
Þessi ólíka menntun held ég að hafi komið
sér vel í samstarfinu."
Nú hafði Ragnhildur allsérstaka ímynd
þegar þið kynntust, söngkona í kvenna-
rokksveit. Reyndist hún allt önnur þegar
frá leið en þú hafði gertþér í hugarlund?
„Hún kom mér vel og þægilega á óvart."
Jakob þagnar kíminn og heldur svo áfram:
„Ef ég heði verið að leita mér að bitastæðri
húsmæðraskólagenginni og hagsýnni hús-
ffeyju með þjónslund hefði ég sennilega
leitað í annan rann. Hins vegar kom það
þeim mun skemmtilegar á óvart hve ný-
bylgjudrottningin var vel í stakk búin til
að gera alla þá hluti sem maður reiknaði
alls ekki með af henni. Til dæmis að halda
hús, elda stórkostlegan mat og ala upp
börn og svo framvegis. Þessum kostum
hafði ég bara ekki reiknað með.“
Ragnhildur skellihlær. Jakob heldur
áffam:
„Ég þóttist því hafa dottið í mikinn
lukkupott þegar ég uppgötvaði þetta ofan
á allt annað. Og þetta gladdi náttúrlega
ekki síður mína nánustu. Þeir héldu sumir
hverjir að ég væri að sigla í strand í undir-
heimum íslenskrar pönkmenningar þegar
spurðist um samband okkar. En það var nú
síður en svo.“ □
PARKET
SEM VEKUR
ATHYGLI
WM ___
MARO
—
;
Die Parkett-MaHce®
'•'ZÍL É--
ri-ir-
LLi
oc
<
o.
HARO parketiö er vestur-þýsk hágæðavara. HARO
parketiö er spónlagt og full lakkaö meö sterkasta parket-
lakki sem til er. Á boðstólum eru 10 mismunandi viöar-
tegundir, annaöhvort meö kvistum eða valinn viöur. Það
er sérstaklega einfalt í ásetningu. Mjög hagstætt verö. Öll
fylgiefni á staðnum. Viö útvegum fagfólk til ásetningar.
KYNNTU ÞÉR ÚRVALIÐ
Dúkaland
Grensásvegi 13,105 Rvík, símar 83577 og 83430
32 VIKAN 27. TBL. 1988