Vikan - 15.12.1988, Page 36
íslenskir gullsmiðir gœtu
gengið inn á 300 ára gamalt
verkstœði og farið að vinna
GuUQugur sem þessar gefur Sigurður ár-
lega á árshátíð Stangveiðifélagsins, þeim
sem það árið veiðir stærsta flugulaxinn á
veiðisvæði félagsins.
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
LITMYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
HÁR/SNYRTING: KRISTA, KRINGLUNNI
.Jólatörnin hefst uppúr fyrstu viku
nóvembermánaðar og stendur fram
yfir áramót,“ segir Sigurður Stein-
þórsson gullsmiður í Gull og silfri.
„Þannig hefúr þetta verið í mörg ár
og við sjáum engan mun þessi jól og
verðum ekki vör við þessa kreppu
sem verið er að tala um. Þegar töm-
in byrjar þá er unnið hér á hverju
kvöldi a.m.k. til miðnættis, en auk
min vinna 5 gullsmiðir á verkstæð-
inu, en við leyfúm okkur þó að eiga
frí á laugardagskvöldum."
Sigurður hefur unnið við gullsmíði í 25 ár
þó hann sé ekki nema 41 árs, en gullsmíði er
í blóðinu því faðir hans, heitinn, Steinþór
Sæmundsson, fékk sveinsbréfið 1941 þannig
að Sigurður ólst upp við guUsmíðina. Hann
fór að læra hjá föður sínum 16 ára og fékk
sveinspróf á því skemmtUega ári 1968.
— En ef pabbi þinn hefði ekki verið gull-
4 Þessi tvö hjörtu í perlufesti smiðuðu þeir
bræður Sigurður og Magnús fyrir afniæl-
issýningu Félags íslenskra gullsmiða
sem haldin var 1984. Þar í er demantur
sem metinn er á andvirði 4-5 herbergja
íbúðar. Þá er bara spumingin, hversu
miklu þeir eru tilbúnir að eyða í elskuna
sína...