Vikan - 15.12.1988, Síða 37
smiður, heldurðu þá að þú hefðir samt sem
áður farið í gullsmíði?
„Ég hafði alltaf verið mikið í teiknun og
málun, þannig að þegar ég sá að hægt væri að
lifa af því sem maður skapaði þá fannst mér,
gullsmíði mjög góður kostur. Ég sé ekki eftir
að hafa valið hana, en ef ég hefði farið út í eitt-
hvert langskólanám þá hefði það verið eitt-
hvað sem tengdist sköpun og þá kannski arki-
tektúr. Mér finnst það mjög góð tilfinning að
vera að starfa við það sem ég hef gaman af og
mér verður oft hugsað til þeirra sem eru að
vinna við eitthvað sem þeim hundleiðist. Það
hlýtur að vera hræöiiegt."
Olíukreppa getur haft áhrif
á útlit skartgrips
Það voru ekki bara þeir feðgar tveir sem
höfðu áhuga á gullsmíði í fjölskyldunni, því
yngri bróðir Sigurðar, Magnús, var farinn að
læra hjá pabba þeirra um það leyti sem Sig-
urður tók sveinsprófið og í mörg ár störfúðu
þeir saman aliir þrir. Sigurður fór í framhalds-
nám tU Svíþjóðar þar sem hann ætlaði að
leggja stund á myndlist í smabandi við fagið,
en fór þess í stað að vinna hjá stærsta skart-
gripafyrirtæki Svíþjóðar þar sem hann lærði
greiningu á demöntum og hvernig þeir eru
grópaðir á mismunandi hátt á hringa. Og þeg-
ar hann kom heim um ári síðar var hann einn
af þeim fyrstu hér á landi sem hafði sérmennt-
að sig í þessum demantafræðum.
„Ég opnaði verkstæði á annarri hæð í húsi
við Kiapparstíginn sem enginn sá frá götunni,
en samt hafði ég strax brjáiað að gera. Ári
seinna, eða Í971, stofnuðum við Magnús,
pabbi og mamma, Gull og silftir, sem frá upp-
hafi hefúr verið hér í þessu húsi við Laugaveg
35.“
Og ef hugsað er út í það, þá eru gulismið-
averslanir líklega með þeim fáu sem aUtaf eru
á sínum stað við Laugaveginn. Finnst Sigurði
hafa orðið mikil breyting á skartgripum frá
því hann byrjaði?
„Það er skemmtileg þróun sem er að eiga
sér stað. Karlmenn eru farnir að nota skart-
gripi mun meira. Hér áður fyrr voru skartgrip-
ir keyptir í 98% tilfella af konum eða fyrir
konur, þessi 2% voru þá skyrtuhnappar eða
eitthvað annað. Nú er algengt að sjá karl-
menn með hring á litla putta eða demants-
prjón í bindinu. Ég held þetta séu áhrif frá öll-
um ferðalögunum sem landinn er farinn að
fara í, úr bíómyndum og af bókafestri."
— Hafa utanaðkomandi áhrif þá mikU áhrif
á skartgripi og skartgripakaup?
,Alveg örugglega. Gull hækkaði til dæmis
rosalega á tímabili, t.d. á tímum olíukrepp-
unnar. Þetta kom fagmönnum samt til góða
því þá var farið að smíða netta og fíngerða
skartgripi, þannig að þeir gátu farið að nota
létt og leikandi form. Trúlofúnarhringar voru
mjög breiðir og þungir fyrir svona 10-15
árum, en grannir og fínlegir hringar eru
vinsælastir nú - þó er ég ekki frá því að þeir
séu að breikka aftur.
Trúlofunarhringur
eins og Diönu prinsessu
Kvikmyndastjömur og frægt fólk getur einn-
ig haft áhrif á skartgripatískuna. Trúlofunar-
hringur Díönu prinsessu var með stómm safír
í miðju og demöntum í kring. Þannig hringar
urðu mjög vinsælir á eftir og em enn.“
— Em eitthvað ákveðið sem einkennir þína
skartgripi frekar en annað?
Frh. á næstu síðu
Eina útsprungna gullrós með demanti í fékk eiginkona Sigurðar, Kristjana Ólafsdótt-
ir, þegar fyrsta dóttirin faeddist, en hálsmenið þegar sú næsta var komin til sögunnar.
Þessir gripir eru meðal þeirra sem Sigurður hefur lagt einna mest í smíðina á, enda
tilefni til. Á forsíðunni má einnig sjá skartgripi frá Sigurði og háls menið smiðaði
hann í tilefni af 10 ára brúðkaupsafmæli þeirra hjóna. Tíu demantar mynda hjartað
- árin 10- utan um stóra demantinn sem táknar fjölskylduna.
Sigurður segir að hann hafi leyft sér að
leggja áherslu á að smíða fremur dýra
skartgripi. Hér sjást nokkrir þeirra.
Perlufestar eru sígildar, en nú er vinsælt
að hafa á þeim skraut úr gulli og dýrum
steinum. Hringurinn á vísifingri er karl-
mannshringur , en við smíði hans hafði
Sigurður stuðlaberg í huga sem myndar
umgjörð um demantinn sem hann hugs-
ar sér sem tákn fyrir okkar tæru fossa.
Trúlofunarhringur Díönu prinsessu var
með safír umkringdum demöntum -og
síðan hafa slíkir hringar verið vinsælir.
Sett, þar sem saman eiga hálsmen, hring-
ur og jafnvel armband, þykja alltaf mjög
eiguleg.
27. TBL 1988 VIKAN 37