Vikan - 15.12.1988, Side 44
BÆKUR
„Engin venjuleg mamma“
Helga Thorberg segir fró móður sinni Minnu og tilurð bókarinnar um hana
TEXTI: GUÐRÚN ALFREÐSDÓTTIR
UÓSM.: PÁLL KJARTANSSON, LOFTUR O.FL.
Bókin „MINNA „engin venjuleg mamma“
geymir sögu merkrar konu sem átti óvenju-
lega ævi. Guðfinna Breiðfjörð, eða Minna
eins og hún var alltaf kölluð, byrjaði að skrifa
minningarbrot sín en dóttir hennar, Helga Thorberg,
lauk við bókina sem nú er nýútkomin. Bók þessi er
sérstæð blanda af glettni, alvöru og sársauka, en þannig
var einmitt líf Minnu. Kaflaskilin þar voru skörp. Þar er
m.a. stórglæsileg póstmeistarafrú í Eyjum og aðalleik-
kona staðarins - einstæð móðir og hárgreiðslukona -
tólf ára tímabil þunglyndissjúklings á stofnunum -
endurkoman út í lífið og óbilandi kjarkur fiskverka-
konu við að sanna sig og aðlagast. Minna hafði ekki tap-
að lífsfjöri sínu eða skopskyni. Hún lést úr krabba-
meini árið 1985, 64 ára að aldri.
Örfáum mánuðum áður en
Minna lést sagði hún ffá vænt-
anlegri bók sinni í útvarps-
þætti hjájónasijónassyni. Hún
var hress og bjartsýn að vanda
og sagðist ekki vera á förum
strax, hún ætti svo margt eftir
að gera m.a. að ljúka bókinni.
Ekki entist henni þó aldur til
þess svo það lá beint við að
dóttirin Helga, sem fengist
hafði við ritstörf, tæki að sér að
ljúka verkinu. Helga sótti um
Guðfinna Breiðfjörð, eða
Minna eins og hún var alftaf
kölluð, sem ung kona. Þá
naut hún sín, var aðal-
leikkonan á staðnum, falleg
og vinsæl.
starfslaun rithöfunda til að
geta gefið sig að skrifunum, en
fékk synjun. Hún gekk á milli
nokkurra útgefenda en enginn
hafði nægilegan áhuga þá. Það
var ekki fyrr en eftir að hún
kom ffarn í sjónvarpsþætti um
geðræn vandamál nú síðsum-
ars, þar sem hún las úr
minningum móður sinnar, að
margir bókaútgefendur gáfu
sig ffam. Þar með var Helgu
ekkert að vanbúnaði.
„Tilfmningar mínar nú, effir
að hafa lokið við þessa bók,
eru dálítið blendnar," segir
Helga. „Það er að mörgu leyti
jafh erfitt að slíta sig ffá þessu
eins og það var að byrja á því.
Ég þurfti fastan útgáfusamning
til að knýja mig áfram því það
var svakalegt átak að sökkva
sér niðtir í hin dapurlegu
tímabil í lífi móður minnar.
Það var líka erfitt að finna
réttu leiðina í mínum skrifum.
Ég hafði í fýrstu talað til
mömmu um leið og ég gekk
um gólf heima hjá mér, setti
svo þær hugleiðingar mínar á
blað en ætlaði þær eingöngu
fyrir mig. Það var síðan ágæt
vinkona mín sem fullvissaði
mig um að einmitt þar lægi
rétti tónninn, þannig yrði bók-
in einlægari og persónulegri
en ef hún yrði skrifúð í bein-
um frásagnarstíl. Ég vona að
svo sé enda gat ég best skrifað
bókina svona þó sárt væri á
köflum."
Það sem hún Minna hefur að
segja í þessari bók á brýnt er-
indi til okkar allra. Það er mik-
ill kjarkur að baki frásögnum
hennar um hinn erfiða þung-
lyndissjúkdóm og baráttuna
44 VIKAN 27. TBL 1988
Helga Thorberg í garðinum fyrir framan Kfeppsspítalann, en
þar dvaldi móðir hennar í mörg ár.
við að aðlagast samfélaginu
aftur, vera meðtekin sem heil-
brigður einstaklingur. Þáttur
Minnu er þungamiðja bóka-
rinnar en Helga hefur fléttað
saman við frásögnum úr lífi
hennar fýrir og eftir veikindin.
„Ég held að mamma hafi
fýrst og fremst viljað skrifa
þessa bók til að gefa þessum
tólf árum sínum sem sjúkling-
ur inni á stofnun einhvern
tilgang. Að hún hafi ekki verið
þar til einskis. Henni var svo
eðlislægt að gefa og hún hefur
viljað gefa þeim sem svipað er
ástatt fýrir hugrekki og bjart-
sýni. Hún vildi miðla öðrum af
reynslu sinni ef það mætti
verða til að auka skilning og
minnka fordóma á þessum
sjúkdómi. En það sem áreiðan-
lega var erfiðast fýrir hana í
sambandi við veikindin, var að
koma aftur út í þjóðfélagið
sem frjáls og heilbrigð kona
sem vildi lifa lífinu með reisn.
Eftir að hún fann viðtökurnar
og hversu erfitt var að brjóta
þá múra sem hún sífellt rakst á,
fór hún æ meir að starfa fyrir
fólk með geðræn vandamál og
aðra sem minna máttu sín.
Hún vann m.a. á hárgreiðslu-
stofu hjá Öryrkjabandalaginu
og Ási í Hveragerði og vann
J