Vikan - 15.12.1988, Síða 48
JÓLASKREYTINGAR
Jólasveinar úr leir og k>pa
Grýlubörn Ragnhildar Gunnlaugsdóttur í Garðabœ
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR
MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Islensku jólasveinarnir, synir þeirra
Grýlu og Leppalúða, njóta nú síauk-
inna vinsælda og best gæti ég trúað
að áður en langt líður megi hann
Sankti Klaus, sá útlendi karl í rauðu fötun-
um, fara að passa sig. Suður í Garðabæ er
Ragnhildur Gunnlaugsdóttir önnum kaf-
in ffá því síðla sumars og ífam undir jól
að skapa jólasveina sem eru svo sannar-
lega ekki með útlendum svip, heldur
rammíslenskir á að líta í sauðskinnsskóm
og Iopafötum, þótt skórnir séu reyndar
ekki úr skinni heldur brenndum steinleir.
Ragnhildur hefúr búið til jólasveina frá
því árið 1982. Fyrst byrjaði hún reyndar á
því að búa tii litlar jólafígúrur sem hafa
yfirbragð danskra jólanissa sem svo eru
nefndir. Þetta voru bæði karlar og kerling-
ar í rauðum búningum sem héldu á hinu
og þessu smálegu. - Verst gekk mér að
finna á þau skóna, segir Ragnhildur um
leið og hún sýnir okkur þessa lfumsmíð
sína. En svo var það einn daginn nokkru
fýrir jól, að hún var farin að baka jólasmá-
kökurnar og var með möndlur í höndun-
um. Þá datt henni í hug, að möndlurnar
hentuðu ágætlega í skó á þetta smáfólk.
Hún skar möndlur í tvennt, stakk pípu-
hreinsarafótunum niður í þær og lakkaði
þær svo vandlega. Möndlurnar minna okk-
ur einna helst á hollenska tréskó.
íslensku karlarnir verða til
Svo kom að því að Ragnhildur fór að
gera tilraunir með annars konar jóiasveina
og íslensku jólasveinarnir fóru að taka á
sig mynd. Hún hafði í huga kvæðið Jóla-
sveinana effir Jóhannes úr Kötlum á með-
an hún bjó karlana til og meira að segja
andlitin minna nokkuð á teikningar
Tryggva Magnússonar í bókinni Jólin
íslensku jólasveinarnir þrettán. Allir halda þeir á einkennishlutum sínum, sem búnir eru til úr steinleir, óglerjuðum
en brenndum. Takið eftir skónum sem minna mjög á skinnskó þótt úr leir séu.
48 VIKAN 27. TBL1988