Vikan - 10.08.1989, Qupperneq 12
5KAFMIÐALEIKURINM
Flogið með Flugleiðum í vellystingum á Saga Class á vit ævin-
týranna í París.
Það er ekki hægt að koma til háborgar tiskunnar öðruvísi en
að líta í nokkrar tískuverslanir.
Með „Le Chasseur de Maxim’s“ fyrir utan veitingastaðinn
heimsfræga eftir ljúfa kvöldstund.
TEXTI:
ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON
LJÓSM.:
GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
Iglaða sólskini og 30 stiga
hita nutu þær mæðgurnar
Kolbrún Jónsdóttir og
Ágústa Steingrímsdóttir
ævintýralegrar helgarferðar til
Parísar siðustu daga júlímánaðar.
Ágústa hafði verið svo heppin að
eiga skafmiðann úr lesendakönn-
un Vikunnar, sem dreginn var út
og færði henni þannig þessa lúx-
usferð í boði Vikunnar, Flugleiða
og tískukóngsins Pierre Cardin.
Ferðavinningur þessi hafði vakið
verulega athygli og hefúr ásamt
Costa del Sol ferðunum þremur í
boði Veraldar og Castillo de Vig-
ia, tvímælalaust átt sinn stóra
þátt í því að þúsundir seðla bár-
ust blaðinu á þeim tveim mánuð-
um sem lesendakönnunin stóð
yfir.
Það var í vor að Vikan og
Klassík sf. sem flytur inn snyrti-
vörur Pierre Cardin, sendu
skeyti til tískukóngsins með
fyrirspurn þess efhis hvort hann
væri tilbúinn til að taka á móti ís-
lenskum gestum á tískusýning-
una þar sem hann mundi kynna
haust- og vetrarlínuna í fatnaði.
Slíkar sýningar eru aðeins fyrir
sérstaka boðsgesti, en það mátti
kanna viðbrögðin.
Það liðu ekki nema tveir
klukkutímar þar til svarskeyti
hafðiborist ffá Cardin. Gestirnir
voru boðnir hjartanlega vel-
komnir. Og ekki nóg með það,
Cardin vildi einnig fá að bjóða
þeim til kvöldverðar á veitinga-
staðnum Espace og sömuleiðis
þeim sögufræga stað Maxim’s en
báðir þessir staðir eru nú í hans
eigu. Nýjasta ilminn í snyrtivöru-
framleiðslunni skírði hann ein-
mitt eftir síðast nefhda veitinga-
staðnum.
Til að kóróna boðið hafði
Cardin jafnframt á þessum ör-
skamma tíma bókað boðsgesti
sína á hið glæsilega hótel Park
Avenue Hotel, sem er afar vel
staðsett í borginni.
Flogið á Saga Class
Flugfarþegum á leið í slíka lúx-
usheimsókn til Parísar var svo
vitaskuld ekki hægt að bjóða ann-
að en fyrsta flokks þægindi í flugi
og þess vegna var bókað á Saga
Class Flugleiða heiman og heim.
Þeim mæðgum, Kolbrúnu og
Ágústu var því eðlilega farið að
líða eins og þjóðhöfðingjum
strax á leiðinni út sunnudaginn
23. júlí. Það gekk fljótt og vel
fyrir sig að losna við töskurnar
og fá brottfararspjöldin þar sem
farþegar Saga Class ganga beint
að sérstakri þjónustu við kom-
Leiðsögumaðurinn sem
Peugeot bifreiðaverksmiðj-
umar lögðu til fræðir hér
mæðgumar um merkan
sögustað sem staðnæmst var
við.
una til Leifsstöðvar. Eftir að hafa
síðan verslað nægju sína í Frí-
höfhinni gátu þær svo látið fara
vel um sig í sérstakri setustofu
Saga Class farþega iram að því að
brottfarartiikynningin hljómaði í
hátalarakerfinu.
Um borð þurftu þær ekki held-
ur að kvarta. Flugfreyjurnar bók-
staflega dekruðu við þær
mæðgur.
Kvöldverður á
Espace
Á Orly flugvelli í París beið
þeirra Ijósmyndari Vikunnar,
Gunnlaugur Rögnvaldsson. Ók
hann þeim á hótelið þar sem
gafet tími til að taka upp úr
töskunum og búa sig fyrir kvöld-
verðinn á Espace. Sá staður er
um þessar mundir einhver vin-
sælasti samkomustaður glæsi-
fólks borgarinnar, sem fer þang-
að til að sýna sig og sjá aðra.
Á leiðinni bar Eiffellturninn
m.a. fyrir augu. Hann á einmitt
aldarafmæli þessa dagana eins og
raunar mátti lesa utan á honum.
Þúsundir ljósapera mynduðu
aldurinn upp eftir turninum.
Það voru vel mettar og sælar
mæðgur úr Hafnarfirði, sem
lögðust til svefiis í vel búnu hót-
elherbergi Park Avenue Hotels
eftir miðnætti. Og þeirra beið
spennandi dagskrá daginn eftir.
Tískuföt fyrir
tugi milljóna
Um miðjan næsta morgun var
svo haldið á tískusýningu Pierre
Cardin þar sem höfðu verið tekin
frá sæti fyrir okkar fólk á úrvals-
stað. Þaðan virtu þær Ágústa og
Kolbrún fyrir sér hæstlaunuðu
tískusýningarstúlkur Parísar-
borgar líða um sviðið í tískufatn-
aði þeim sem dýrustu tískuversl-
anir heims munu bjóða við-
skiptavinum sínum í haust og
vetur. Samanlagt verðmæti þess
fatnaðar sem fyrir augu bar skipti
tugum milljóna króna, enda ekki
verið að sýna þarna fatnað fyrir
einhverjar meðal Jónur.
12 VIKAN 16. TBL. 1989