Vikan - 10.08.1989, Síða 13
5KAFMIÐALEIKURINN
Ljósmyndarar og sjónvarps-
tökumenn mynduðu sýninguna í
gríð og erg fyrir þekktustu
tískublöðin og tískuþætti sjón-
varpsstöðva víðs vegar um heim.
Pierre Cardin heldur sýningar
tvisvar á ári og nýjungarnar sem
hann setur fram þykja ætíð
heimsfréttir.
Vitaskuld dró ljósmyndari Vik-
unnar ekkert af sér við mynda-
tökur frekar en stéttarbræður
hans á staðnum og myndir hans
munu birtast innan tíðar á síðum
blaðsins.
Skoðunarferð I
nýjum eðalvagni
frá Peugeot
Tímann í París nýttu mæðg-
urnar vel. Það er að sjálfsögðu
ekki annað hægt en að líta í
nokkrar tískuverslanir í þessari
háborg tískunnar og breiðstrætið
Champs Elysées þurfti líka að
kanna frá Sigurboganum niður að
Concorde torgi sömu leið og
skrúðgangan, sem kostaði millj-
arð, fór nokkrum dögum áður í
tilefrii byltingarafinælisins. Eiff-
elturninn var svo skoðaður í ná-
vígi og góðum tíma varið í
skemmtigarð Parísar þar sem
ekki var hikað við að fara í rússi-
banann.
Til að gera skoðunarferð
Ágústu og Kolbrúnar sem þægi-
legasta lögðu Peugeot verksmiðj-
urnar frönsku til nýjasta eðal-
vagn sinn nýkominn af færiband-
inu. Hárauðan Peugeot 505 V6
með leðursætum og öðru fíneríi
— og ekki mátti minna vera en að
einkabílstjóri fylgdi með og leið-
sögumaður að auki.
Lesendur geta rétt ímyndað
sér hvort biffeiðaáhugamaðurinn
Gunnlaugur Rögnvaldsson hafi
ekki fengið fiðring er hann komst
í kynni við ökutækið og fullvíst
má telja, að hann eigi eftir að
segja okkur nánar frá viðkynn-
ingunni hér í Vikunni síðar.
Kvöldstund í
Maxim’s
Þegar minnst er á franska mat-
argerðarlist kemur ósjálffátt upp
í hugann nafn frægasta veitinga-
staðar heims, Maxim’s, sem opn-
aður var í miðborginni fýrir
nærri hundrað árum. Pierre
Cardin keypti staðinn fyrir fáein-
um árum, en gætti þess vandlega
að breyta þar engu. Enda staður-
inn innréttaður og skreyttur af
einstökum listamönnum.
Listamenn, rithöfúndar, aðals-
menn og fagrar konur hafa sótt
staðinn til að dáðst að matnum
og húsakynnunum — og láta
dáðst obbolítið að sér líka. Fyrstu
árin voru erfið í rekstrinum, en
þegar þekkt fólk í þjóðfélaginu,
ÞRIÐJA OG SÍÐASTA VERALDARFERÐIN DREGIN ÚT:
Sólarlandaferd og
hórblósari komu
ó sama miðann
Arnold de Contades og hans
fagra vinkona Irma de Montigny,
ákváðu að halda snobbliði París-
ar veislu í Maxim’s vannst stór
sigur; það var búið að gefa
snobburunum línuna og þeir
tóku að streyma á staðinn upp-
ábúnir.
Aldamótaárið öðlaðist Maxim’s
svo heimsfrægð, en þá var heims-
sýningin mikla haldin í París.
Maxim’s komst á blað sem perla
Parísar á fyrsta ári nýrrar aldar.
Það gat síðan enginn sem vildi
teljast maður með mönnum farið
svo um borgina að hann kæmi
ekki við á staðnum og fengi sér í
það minnsta kampavínsglas. Nú
eða allt að tólf rétta máltíð eins
og þarna hafa stundum verið
bomar fýrir gesti sem trúlega
hafa átt erfitt með að gera upp á
milli þeirra freistandi rétta sem á
matseðlinum em.
Vinsældir Maxim’s hafa gert
það að verkum, að þar hefúr ver-
ið hægt að hafa allt fyrsta flokks.
Því fengu hafnfirsku mæðgurnar
svo sannarlega að kynnast er þær
þáðu þar glæsilegan kvöldverð á
mánudagskvöldinu. Hver munn-
biti töfraði fram sælutilfinningu
og virðuleg salarkynnin kórón-
uðu ánægjuna.
Heilsað upp á Albert
Þar sem Kolbrún Jónsdóttir
stóð að stofhun Borgaraflokksins
með Alberti Guðmundssyni og
hafði síðar flutt sig með honum
yfir í Frjálslynda hægriflokkinn
þótti ekki annað hægt en að líta í
heimsókn til hans í sendiherra-
bústaðinn.
Hringt var í Albert skömmu
fýrir Parísarferðina og fagnaði
hann því heilshugar að mega taka
á móti þessari vinkonu sinni og
dóttur hennar eina kvöldstund.
Tóku sendiherrahjónin hin
ángæðustu á móti þeim og fýrr
en varði upphófúst líflegar um-
ræður um stjórnmál enda ekki
við öðm að búast þegar tveir
fyrrverandi sessunautar af Al-
þingi koma saman.
Hvert næst?
Eftir svo glæsilega stórborgar-
ferð sem hér hefur verið lýst
leiðir ritstjóm Vikunnar eðlilega
hugann að því hvert næst skuli
halda með ferðaglaða lesendur.
Fjölmargar hugmyndir skjóta
upp kollinum og verður þess
tæpast langt að bíða að nýr leikur
með ævintýraferð á borð við
þessa í aðalvinning verði hleypt
af stokkunum. Hér var um að
ræða ferð að verðmæti ríflega
kvartmilljón króna - en hún var
svo sannarlega þess virði!
Skildir þú komast í næstu ferð?
Fylgstu vel með svo þú missir
ekki af möguleikanum.
Linda Björk Richter heitir
stúlkan sem vann ferð til Costa
del Sol í skafrniðaleik Vikunn-
ar. Nafri hennar var dregið út
30. júní og þar sem hún var
orðin hundleið á rigningar-
skúrinni sem hófst í apríl og er
ekki enn lokið ákvað hún að
skella sér á sólarströnd 25. júlí
síðastliðinn. Andri Már Ingólfs-
son, forstjóri Ferðamiðstöðv-
arinnar Veraldar, afhenti henni
farmiðana fyrir tvo. Linda á-
kvað að bjóða bróður sínum
með en hann hafði einnig orð
á rigningunni.
Þau eru því núna að sóla sig
á Costa del Sol og búa í vellyst-
ingum á Castillo de Vigia
hótelinu sem var tekið í notk-
un fyrir nokkrum vikum.
Ferðamiðstöðin Veröld hefur
einkarétt á gistingu við hina
vinsælu strönd.
Þriðja og síðasta Veraldar-
ferðin í skafmiðaleiknum er
fyrir tvo í hálfan mánuð með
gistingu á Castillo de Vigia
eins og hinar tvær. Þegar dreg-
ið var úr skafrniðunum þann
29. júlí síðastliðinn kom upp
nafh, Ásdísar Hreinsdóttur,
Skeiðarvogi 67 í Reykjavík. í
Ijós kom að skafmiðinn hafði
áður fært henni Braun hárblás-
ara frá versluninni Pfafif. Og
þegar Ásdís hefur lesið þessar
línur getur hún haft samband
við ritstjórn Vikunnar til að fá
ávísun á sólarlandaferðina,
sem er að verðmæti 125 þús-
und krónur.
Andri Már, forstjóri Veraldar, afhendir Lindu Björk farseðilinn
í sólina. Langþráður draumur hennar að rætast að sjá sól þetta
sumarið. Linda býr við Sunnuflöt í Garðabæ. LJÓSM.: egill
16. TBL 1989 VIKAN 1 3