Vikan - 10.08.1989, Blaðsíða 24
Elsa Magnúsdóttir:
Konurnar ragar við
að etja kappi
við karlana
Elsa Magnúsdóttir rekur hárgreiðslu-
stofu í Reykjavík og vinnur utan heim-
ilis alian daginn. Hún er mjög áhugasöm í
hestamennskunni sem hún stundar ásamt
manni sínum Pjetri N. Pjeturssyni og dótt-
urinni Sigríði, sem er 9 ára. Hún hefur náð
umtalsverðum árangri á íþróttamótum
síðustu misserin.
Aðstöðu hefiir fjölsky'ldan í Hafharflrði,
á athafhasvæði hestamannafélagsins Sörfa.
„Þar er gott að vera,“ sagði Elsa, „og félags-
skapurinn með eindæmum góður." Að-
spurð um þátttöku kvenna sagði hún að
hjá Sörla væru margar kynsystur hennar
duglegar í hestamennskunni, þó fáerri
tækju þátt í keppni. „Sem betur fer eru
konurnar samt að færa sig upp á skaftið."
Hún kvaðst ekki hafa í raun stundað
hestamennskuna mjög lengi. „Ég byrjaði
ekki að ráði fyrr en árið 1978 og að keppa
fyrir þremur árum. Ég hef sannarlega mátt
vera ánægð með árangur minn fram að
þessu, í fyrra tók ég til dæmis þátt í úrslita-
keppninni í fjórgangi."
Aðspurð hvers vegna konur væru svona
faar í keppni, sagði hún að þær væru líkleg-
ast bara ragar að keppa við karlana og þær
héldu að þær væru eitthvað veikari á þessu
sviði. „Ég skil þetta bara alls ekki. — Stund-
um eru eiginmennirnir sjálfsagt frekir og
nota bestu hestana fyrir sig og láta frúrnar
ríða því sem lakara er.
Annars sýnist mér þetta vera að breytast
og hlutur kvenna smám saman að aukast.
Maður sér það til dæmis í unglingaflokkn-
um, en þar eru fjölmargar stelpur í keppni.
Viðv erðum bara að vona að þær láti ekki
deigan síga og haldi ótrauðar áffam.“
Olil Amble:
Maður verður að
trúa á sjálfan sig
Olil Amble er norsk og kom hingað til
lands fyrir nokkrum árum. Hún býr
ásamt manni sínum, Gísla Gísiasyni, og
barni í Stangarholti á Mýrum. Þar vinna
þau við tamningar og þjálfun hesta og
stunda auk þess nokkra hrossarækt. Olil
gerði garðinn frægan, fljótlega eftir að hún
kom hingað til lands, á hestinum Fleyg frá
Kirkjubæ og unnu þau saman til margra
verðlauna á íþróttamótum. Á landsmótinu
síðasta, sem haldið var á Hellu 1986, sigr-
aði OIil eftirminnilega í töltkeppninni á
gæðingnum Snjalli frá Gerðum, og því er
hún enginn nýgræðingur í greininni. Að
sjálfsögðu var Olil mætt til að taka þátt í fs-
landsmótinu í Borgarnesi.
Hún var að fýlgjast með töltkeppninni
þegar blaðamaður hitti hana en ætlaði inn-
an skamms að fara að undirbúa hest sinn
því nokkru seinna um daginn ætluðu þau
að spreita sig á gæðingaskeiði. Fyrir nokkr-
um árum var afar sjaldgæft að konur tækju
þátt í skeiðkeppni, — en nú er öldin önnur
og einar 5 konur voru skráðar í þá grein að
þessu sinni, — en á hinn bóginn 42
karlmenn.
Olil kvaðst hafa byrjað 10 ára í hesta-
mennskunni heima í Noregi en þó ekki
farið á bak íslenskum hesti fýrr en nokkr-
um árum seinna. „í Noregi eru miklu fleiri
konur en karlar sem stunda hesta-
mennsku. Þegar ég kom hingað fyrst voru
örfáar konur á meðal keppenda á þeim
mótum sem ég tók þátt í. Ég held að kon-
urnar haldi að það sé svo erfitt að taka þátt
í keppni, kannski gera þær meiri kröfur til
sjálffa sín en karlarnir. Maður verður auð-
vitað að trúa því að maður geti þetta, og
alls ekki taka það of nærri sér þótt ekki
gangi alltaf sem skyldi.
Ég er á hinn bóginn mjög bjartsýn núna,
því það er svo greinilegt að konunum er
að fjölga. Við erum smám saman að sýna
umheiminum og okkur sjálfum, fram á það
að hestamennska og keppni í hestaíþrótt-
um er ekki bara fyrir karla. í unglingaflokk-
unum eru fjölmargar ungar stúlkur um
þessar mundir sem eiga örugglega eftir að
halda áffam. Þetta hefur breyst mikið á
allra síðustu árum sem betur fer. Þetta sér
maður út um allt land. Á þessu ári hafa
þrjár konur sigrað á íþróttamótum í
keppni í fimm gangtegundum. - Það segir
sína sögu, ekki bara að þær séu farnar að
gera sig gildandi í keppni - heldur líka það
að þær eru farnar að eiga við skeiðið.
Olil býr í sveit og er með lítið barn.
Hvernig fer það saman við tamningarnar?
„Ég ríð ekki eins mikið út núna og ég gerði
áður. En við höfum verið með stúlku okk-
ur til aðstoðar og höfum því öll þrjú reynt
að skiptast á að vera með dótturinni og
hugsa um heimilið á milli þess sem við för-
um út í hesthús og leggjum á. Þetta hefur
gengið alveg prýðilega."
TÓnSTUriDIR
22 VIKAN 16.TBL1989