Vikan - 10.08.1989, Page 35
ATVmriULEIT
ATVINNULEU
TEXTI: ÞÓREY EINARSDÓTTIR
. UÓSM.: KATRÍN ELVARSDÓTTIR
Þegar kemur að því að leita að frambúð-
arstarfi liggur beinast við að leita til ráðn-
ingastofa eða kanna atvinnuauglýsingar
dagblaðanna. Stundum er fólk beðið um
að hringja eða mæta á staðinn, í sumum til-
fellum eru umsækjendur beðnir um að
fylla út sérstök umsóknareyðublöð sem
fást hjá viðkomandi fyrirtæki eða stofhun,
en oftast nær eru lysthafendur beðnir um
að senda inn skriflega umsókn. Umsóknar-
eyðublöðin eru þægileg fyrir þá sem eiga
erfitt með að koma fyrir sig orði á blað,
en þau gefa umsækjandanum lítið feri á
persónulegri ffamsetningu.
ATVINNUUMSOKN
Það er mikil kúnst að semja góða at-
vinnuumsókn. Víða erlendis, einkum í
Bandaríkjunum þar sem raunar eru skrif-
aðar bækurúm alla skapaða hluti, má finna
fjöldann allan af bókum, um hvernig setja
á fram umsókn og fylgja henni síðan eftir.
Mannaráðningar ganga að mörgu leyti
öðruvísi fyrir sig þar í landi þar sem flest
fyrirtæki eru miklu stærri og umsvifameiri
en hérlendis, en þó má hafa nokkurt gagn
af þessum bókmenntum varðandi hvernig
rétt sé að bera sig að og hvað beri að
varast. Grundvallarboðorðið er að sé fólk í
alvöru að leita að starfi skuli það ganga til
verks af fullri alvöru. Því má alls ekki kasta
höndunum til umsóknarinnar. Hún felur í
sér fyrstu kynni atvinnuveitandans af um-
sækjandanum, kynni sem ef til vill verða
ekki lengri, en kunna hugsanlega að varða
alla framtíðina.
Stórt fyrirtæki í Reykjavík réð fyrir
nokkru til sín ritara. Hátt í þriðja tug um-
sókna bárust um starfið og margir hæfir.
Eitt af því fyrsta sem sá sem ráðninguna
annaðist gerði var að raða upp öllum um-
sóknunum og flokka þær eftir útliti og
uppsetningu umsóknarinnar. Illa skrifaðar
og klúðurslegar umsóknir féllu strax úr og
að lokum voru þeir umsækjendur sem áttu
þrjár vönduðustu umsóknirnar kallaðir til
viðtals. Svipuðum aðferðum og þessum er
víða beitt. Ályktunin sem atvinnuveitand-
inn eða ráðningastjórinn dregur af vand-
aðri og snyrtilegri umsókn er sú að hún
beri vott um snyrtimennsku og vönduð
vinnubrögð viðkomandi, en það eru
mikilsverðir kostir við hvers kyns störf.
Umsóknin ætti alltaf að vera vélrituð
eða skrifuð á tölvu nema sérstaklega sé
beðið um eiginhandarumsókn. í Banda-
ríkjunum og fleiri löndum tíðkast að senda
inn umsókn í tvennu lagi, annars vegar
eiginlegt umsóknarbréf, þar sem meðal
16. TBL. 1989 VIKAN 33