Vikan - 10.08.1989, Page 36
ATVIMI1ULEIT
annars koma hefðbundnar upplýsingar um
menntun og fyrri störf og fleira án þess að
það sé ítarlega tilgreint og ekki síst hvers
vegna viðkomandi sækir um starfið og
hvaða eiginleikum hann telur sig búinn til
þess að geta gegnt því. Hins vegar fylgir
umsókninni svo kallað Resumé eða Curr-
iculum vitae (æviágrip) þar sem nákvæm-
lega er tilgreint um menntun og fyrri störf,
reynslu og kunnáttu sem máli kann að
skipta. Þar er vísað í meðmælendur, til-
greint um prófskírteini og því um líkt.
Curriculum vitae er ekki í samfelldu máli,
heldur þurr upptalning í eins konar
skýrsluformi. Það má helst ekki vera
lengra en ein síða, snyrtilega og skipulega
upp sett. Pia Holten, danskur atvinnuráð-
gjafi sem skrifað hefúr vinsæla bók um
starfsumsóknir, Jobsögning með omhu,
mælir eindregið með að þetta form sé
notað. Hún leggur til að yfirlitið yfir náms-
og starfeferilinn byrji á kynningu, það er
nafni, aldri, heimilisfangi og síma. Því næst
kemur skólaganga í réttri tímaröð, þá
starfereynsla, þar sem byrjað er á núver-
andi starfi farið til baka. Ef um er að ræða
umsækjanda sem er að sækja um sitt fyrsta
frambúðarstarf er rétt að tíunda alla
sumarvinnu og hlutastörf með skóla. Eldra
og reyndara fólk ætti aðeins að nefna
helstu störf sem það hefur unnið. Að síð-
ustu koma persónulegar upplýsingar, svo
sem um hjúskaparstöðu og börn, heilsufar
og fleira. Engin regla er til um hve ítarleg-
ar þessar upplýsingar þurfa að vera, en rétt
að gefa upp það sem máli skiptir, forðast
málalengingar en halda engu leyndu sem
seinna meir gæti komið óþægilega upp á
yfirborðið.
VIÐTAL
Ef allt gengur að óskum og umsækjand-
inn er boðaður í viðtal hefet næsti og af-
drifaríkasti áfanginn. Erlendis er mikið lagt
upp úr því að umsækjandi afli sér upplýs-
inga um viðkomandi fyrirtæki eða stofnun
og komi vel upplýstir í viðtalið. Hér á
landi er því hins vergar svo farið að oftar
en ekki veit umsækjandi alls ekki hjá
hvaða fyrirtæki hann er að sækja um hjá og
þessi leynd getur stundum komið sér illa.
Þegar umsækjandinn er hins vegar kallað-
ur til viðtals fáer hann að vita hvert fýrir-
tækið er. Oft er fyrirvarinn stuttur, en þó
skaðar ekki að kanna um hvers konar fýrir-
tæki er um að ræða, til dæmis, er þetta
verksmiðja, heildsala og hvað ffamleiðir
hún eða flytur inn.
Sérfræðingar segja að algengast sé að sá
sem ráðninguna annist geri upp hug sinn á
fyrstu 30 sekúndum viðtalsins, og noti síð-
an það sem eftir er tímans til að réttlæta
ákvörðun sína. Hvort sem þetta er rétt eða
ekki hlýtur það ævinlega að vera til góðs
að koma vel fýrir við fyrstu kynni. Hér
koma nokkur heilræði:
■ Mættu snemma. Erlendar kannanir
sýna að óstundvísi hefur afar slæm áhrif á
vinnuveitandann. Jafnvel hér á landi þar
sem óstundvísi er landlægur ósiður er lág-
mark að mæta á réttum tíma í vinnuviðtal.
■ Klæddu þig snyrtilega og látlaust. Þú
veist ekki fýrirfram hvernig andinn er á
vinnustaðnum og því best að hafa vaðið
fyrir neðan sig.
■ Hafðu með þér affit af prófskírtein-
um og öðrum vitnisburði um góða
ffammistöðu til þess að geta sýnt ef þörf
krefur.
■ Hlustaðu vel á það sem sagt er við þig
og svaraðu öllum spurningum í samræmi
við það sem spurt er um.
■ Ekki mæta með tyggjó, ekki reykja
eða borða á meðan á viðtali stendur.
Gríptu ekki fram í fýrir þeim sem er að
ræða við þig og hróflaðu ekki við neinu á
skrifborðinu.
■ Sýndu starfinu áhuga án þess að
vera með neina tilgerð. Segðu aðeins
eitthvað jákvætt um sjálfa þig og reynslu
þína. Talaðu aldrei illa um fyrri vinnuveit-
endur.
■ Ef spurt er hvers vegna þú hafir
eða viljir hætta í núverandi starfi er
best að láta ekki mikið uppi um launakröf-
ur eða leiðindi. Best er að segja að maður
vilji breyta til, öðlast meiri ábyrgð, vinna
meira krefjandi starf, að nýja starfið sé nær
þínu áhugasviði og svo framvegis.
■ Þegar þú ert beðinn að lýsa kost-
um þínum og veikleikum skaltu ekki
vera feimin við að nefna kosti þína sem
mest koma starfinu til góða. Óþarfa hóg-
værð og lítillæti borgar sig ekki, en á hinn
bóginn skaltu forðast að upphefja þig á
kostnað annarra. Ef talið berst inn á þær
brautir er best að gera viðmælandanum
ljóst að þú gerir þér grein fýrir að þú hafir
og getir gert mistök, en sért tilbúin að
horfast í augu við þau og forðast að gera
þau aftur.
■ Sjálfsagt er að gera raunsæjar
launakröfur og nefna í því sambandi á-
kveðið bil. Gott er að nefha þau laun sem
þú hefur eða hafðir í síðasta starfi og láta í
ljós hvort þú viljir fá launahækkun eða
hvort það skipti ekki máli.
■ Ef þú ert spurð uin framavonir inn-
an fýrirtækisins er rétt að fara varlega í
sakirnar. Margir yfirmenn myndu ekki
vilja ráða manneskju til starfa sem fljótlega
ætlaði sér að ógna þeim sjálfum eða búast
mætti við að yrði aldrei ánægð fyrr en hún
kæmist til metorða. Best er að láta í ljós
hóflegan metnað og svara á þeim nótum
að þú viljir vinna þitt starf vel og sam-
viskusamlega og að þú væntir þess að með
tímanum verði þér falin meiri ábyrgð.
Sá sem sækir um vinnu er í raun að
bjóða fram þjónustu sína í vissum skiln-
ingi og reyna að selja hæfni sína og per-
sónu. Hann þarf því að beita ákveðinni
sölumannstækni, lýsa kostum sínum og
sannfæra kaupandann um hann geri rétt í
að ákveða þessi kaup. Sýndarmennska og
smjaður er hins vegar nokkuð sem reynt
fólk sér strax í gegnum. Menn verða að
leika eftir eyranu hverju sinni, en það er
ávallt best að vera heiðarlegur og blátt
áffam í orði og ffamkomu. Gömul væmin
saga sem margir þekkja, um piltana tvo
sem voru að sækja um vinnu, býr yfir
óhagganlegum sannleika. Annar pilturinn
var illa greiddur með sorgarrendur undir
nöglunum, óburstuðum skóm og bar ekki
við að hirða upp bók af gólfinu sem for-
stjórinn hafði komið þar fýrir sem lúmskri
gildru. Hinn pilturinn átti góða móður
sem brýndi fyrir honum góða siði, enda
mætti hann vel greiddur með hreinar
neglur í burstuðum skóm og tók bókina
strax upp af gólfinu. Það þarf ekki að
spyrja að því hver hafði fengið sendUstarf-
ið sem um var að ræða — og væntanlega
endað sem forstjóri.
ALDREI AÐ GEFAST UPP
Þó svo að vel hafi verið vandað til um-
sóknar og viðtal gengið að óskum fer oft
svo að einhver annar hreppir hnossið. Þá
er bara að halda áfram og gefast aldrei
upp. Ef viðkomandi hefur mætt til viðtals
ætti hann ekki að hika við að spyrja hve-
nær vænta megi ákvörðunar. Fyrirtæki og
stofnanir sem auglýsa eftir fólki eiga skil-
yrðislaust að láta alla umsækjendur vita
bréflega ef umsókn er hafhað. Það er hel-
ber dónaskapur að ætlast til þess að fólk
sendi inn persónulegar upplýsingar án
þess að fá nokkurn tíma svar. Kurteislegt
• Hjá Ábendi gefst
fólki kostur á að taka
bandarískt sálfrœðipróf
sem miðar að því að
leiða í Ijós til hvers
hugurinn stefnir, það er
í hvaða starfi líklegt sé
að viðkomandi muni
una sér best.
• „Það sem mestu máli
skiptir er að fólk sýni
starfinu áhuga og virki
trúverðugt."
ljósritað svarbréf ásamt endursendri um-
sókn ætti ekki að vera neinu fyrirtæki of-
viða.
RAÐNINGASTOFUR
Ráðningastofur eru nokkrar starfandi í
Reykjavík og þar getur fólk í atvinnuleit
látið skrá sig sér að kostnaðarlausu. Þang-
að leita vinnuveitendur með óskir sínar
um starfsfólk og síðan er reynt að velja
saman störf og fólk eftir óskum og þörfum
beggja aðila. Einar Páll Svavarsson varð
fýrir svörum hjá Ábendi, ráðgjafar- og ráðn-
ingaþjónustu við Engjateig í Reykjavík.
Hjá Ábendi er annars vegar veitt ráðgjöf í
sambandi við náms- og starfeval. Sú ráðgjöf
er í höndum Ágústu Gunnarsdóttur sál-
34 VIKAN 16.TBL. 1989