Vikan - 10.08.1989, Side 44
MUGLEIÐinGAR
(slcmd í frveim
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON
UÓSM.: BJÖRN HRÓARSSON
Atlantshafssprungan fer í gegnum ísland eins og punktalínan á myndinni
sýnir. Á sprungunni sjálfri eru helstu eldstöðvamar. 1. Krafla, 2. Askja, 3.
Grimsvötn, 4. Lakagígir, 5. Katla, 6. Hekla, 7. Helmaey, 8. Surtsey.
Vestan sprungunnar er landslag víða svipað og í Ameríku. 9. Hombjarg gæti
átt sér hliðstæðu á Grænlandi eða í Alaska. 10. Vatnsnesið er á vissan hátt
kanadiskt útlits. 11. Mýrar gætu verið á Nýfundnalandi. 12. Margir útlendingar
hafa sagt að leiðin til Þingvalla minni svolítið á ökuleiðir í villta vestrinu og 13.
Geysir í Haukadal lætur huga margra reika til Yellowstone National Park í
Bandaríkjunum.
Austan sprungunnar tekur svo evrópskt landslag yfirhöndina þótt viða á ís-
landi sé landslag ólíkt öllu öðm sem þekkist í heiminum, t.d. 14. víða í Ódáða-
hrauni. 15. Vopnafjörður gæti þá veríð hvar sem er við Atlantshafsströnd Evr-
ópu. 16. SeyðisQörður gæti allt eins verið í Noregi, 17. Hallormsstaðaskógur
ber með sér ýmis einkenni alvöm skóga í Skandinavíu og 18. Skaftafell í Öræf-
um gæti verið einhvers staðar í austurrísku Ölpunum.
Margar kenningar eru til um
uppruna íslands. Ein er á þá
leið að einhvern tíma endur
fyrir löngu hafi tvö tungl
sveimað umhverfis Jörðina. Kannski hafa
allar pláneturnar haft tvö eða fleiri tungl í
þá daga en Sólin hefitr sennilega gleypt
mána Merkúrs og tungl Venusar hafa hrap-
að í höf plánetunnar með þeim afleiðing-
um að síðan er Venus öll hulin eitruðum
skýjum. En hafi tvö tungl einhvern tíma
fylgt Jörðinni getur verið að annað þeirra
(það minna) hafi hrapað í norðanvert Atl-
antshafið fyrir um það bil sextíu milljón-
um ára með þeim afleiðingum að geysileg
flóðbylgja og miklar loftslagsbreytingar
hafi drepið allar risaeðlurnar. Við tungl-
hrapið hefur botn Atfantshafsins svo klofn-
að frá norðri til suðurs. En hluti tunglsins
stendur ennþá upp úr hafinu — eftir kenn-
ingunni að dæma — og gengur undir nafn-
inu ísland.
Landrekskenningin
Önnur kenning er nefnd landrekskenn-
ingin. í henni er meðal annars gert ráð fyr-
ir að Atlantshafið sé smám saman að
breikka með þeim afleiðingum að Evrópa
og Afríka annars vegar og Ameríka hins
vegar séu smám saman að fjarlægjast hvor
aðra. Við gliðnunina hefur ísland smám
saman orðið til norðarlega á Atlantshafs-
sprungunni. Vestan sprungunnar er Amer-
íka en Evrópa austan megin. Og þar sem
ísland er á Atlantshafshryggnum miðjum
má segja að annar helmingur landsins sé
Ameríkumegin en hinn Evrópumegin.
Þegar betur er að gáð kemur líka í ljós að
vesturhluti landsins, vestan Eyjafjarðar og
Rangárvallasýslu, líkist Ameríku hvað
landslag varðar en hinn hlutinn er líkari
Evrópu. Það er til dæmis fátt sameiginlegt
með Snæfellsnesi og Breiðafirði annars
vegar og Vopnafirði og Hallormsstað hins
vegar. Mér datt þetta í hug um daginn þeg-
ar ég rabbaði við Kjartan Lárusson, for-
stjóra Ferðaskrifstofu íslands. Þá minntist
hann á að gott væri að hafa tvær góðar
ökuleiðir um miðju landsins, Kjalveg og
malbikaða Ódáðáhraunsbraut. Reyndar
var hann fyrst og ffemst að tala um
skemmtilegar ökuleiðir utan hringvegar-
ins en þetta sagði hann meðal annars.
„Landið klippt í tvennt“
„Óvíða í Evrópu er aðalumferðaræð
lands lögð á eins fallegan hátt og í gegnum
eins falleg héruð og á íslandi. Þetta kemur
af sjálfu sér hjá okkur þar sem landrýmið
gefur ekki kost á öðru, til dæmis á suður-
ströndinni þar sem ekið er undir ægifögr-
um skriðjöklum Vatnajökuls tímunum
saman. Um 70 prósent af leiðinni ffá
Reykjavík til Hornafjarðar eru orðin mal-
bikuð. Svipaða sögu er að segja um leiðina
til Akureyrar en margir hafa ekki gert sér
grein fyrir því að vegir landsins hafa stór-
batnað á undanförnum árum. Leiðin á
milli Sauðárkróks og Siglufjarðar er mal-
bikuð inn allar sveitir og leiðin til Akur-
eyrar hefur styst mikið við malbikið. Veg-
urinn þangað frá Reykjavík er orðinn svo
góður að munurinn á bílferð og flugferð
þangað fer stöðugt minnkandi. Það tekur
klukkutíma að fljúga á -milli og með
klukkutíma bið á hvorum flugvelli eru það
þrír tímar. Það tekur rúma sex tíma að fara
þetta með rútu. Rútuferðir eru orðnar
mjög þægilegar. Þar er hægt að halla sæt-
inu aftur, virða fyrir sér landslagið og hafa
það virkilega notalegt. Svo er stoppað á
leiðinni til að teygja úr sér. Og ekki má
gleyma því að oft verða óhjákvæmilegar
seinkanir á flugferðum. Þegar búið verður
að malbika Sprengisand, sem er ekki eins
mikið mál og margir halda, fer fólk að geta
„klippt landið í tvennt" hvað ferðalög
varðar. Það má ekki gleyma því að það býr
fólk um allt land.“
Geimfararnir héidu að þeir
væru komnir til tunglsins
Seinna bætti Kjartan við:
„Að keyra hringinn og taka alla útúrdúr-
ana með í reikninginn er vel gerandi á tíu
dögum en það tekur svona tvær vikur ef
maður vill virkilega njóta þess. Fjöldi
manns, sem á tveggja drifa bíl, getur mjög
42 VIKAN 16. TBL. 1989